HJÚK3LO03 - Lokaverkefni í hjúkrun
Undanfari : HJÚK3FG05
Í boði
: Vor
Lýsing
Í áfanganum vinna nemendur lokaverkefni sem byggir á fræðilegri þekkingu í hjúkrun og þarf viðfangsefnið að vera á 3. þrepi. Nemandinn dýpkar og þjálfar færni sína í ritun heimildaritgerða og fræðilegum vinnubrögðum sem krafist er við vinnslu og frágang slíkra ritgerða. Lögð er áhersla á notkun viðurkenndra heimilda innan heilbrigðisvísinda. Nemandinn vinnur undir verkstjórn kennara á sjálfstæðan hátt þar sem krafist er frumkvæðis, vandaðra vinnubragða, sköpunar og ábyrgðar á eigin námi. Nemandinn kynnir viðfangsefni sitt með margvíslegum hætti á málstofu.
Einingar: 3