Fara í efni

Blikksmíði

Opið er fyrir umsóknir í blikksmíði fyrir haustönn 2025. Sótt er um á innritun.is.

Nám í blikksmíði er ekki í boði á hverri önn

Áður enn farið er í blikksmíði þarf að ljúka grunnnámi málm- og véltæknigreina sem eru tvær annir og er námð í heildina þrjú ár. Að námi loknu geta nemendur tekið sveinspróf og byrjað að vinna sem blikksmiðir.

Nemendur sem ætla sér í blikksmíði þ.e.a.s. faggreinar blikksmíði þurfa að vera búnir með grunnnám málm- og véltæknigreina.

Grunnnám málm- og tæknigreina

Grunnnám málm- og véltæknigreina er eins árs nám og skilar nemendum hæfni á 2. þrepi. Námið er bæði bóklegt og verklegt.Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar, byggja m.a. á leiðsagnarmati og miðast við að allir nemendur eigi kost á að nýta hæfileika sína og fá endurgjöf á verkefni sín. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og vinnusemi nemenda. Námssamfélagið gengur út á samvinnu kennara og nemenda sem skapar jákvætt og uppbyggilegt umhverfi til náms og starfa. 

Annarplan

Greinar 1.önn 2.önn  
Enska ENSK2LS05    
Grunnteikning GRUN1FF04 GRUN2ÚF04  
Íþróttir HEIL1HH04 HEIL1HD04  
Íslenska   ÍSLE2HS05  
Lífsleikni LÍFS1SN02 LÍFS1SN01  
Rafmagnsfræði   RAMV1HL05  
Suða LOGS1PS03 HLGS2MT03  
Smíðar SMÍÐ1NH05 SMÍÐ2NH05  
Stærðfræði STÆF2RH05 STÆF2AM05  
Skyndihjálp SKYN2EÁ01    
Vélstjórn VÉLS1GV05 VÉLS2KB05  
Einingar 34 37  

Brautarlýsing

Markmið náms í blikksmíði er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem blikksmiðir inna af hendi, þ.e. hönnun, smíði og uppsetning mannvirkjaklæðninga og loftræstikerfa auk þjónustu og viðhalds. Náminu lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í blikksmíði og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Nánari upplýsingar varðand brautarlýsingu er hægt að nálgast hér

Inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.

Námið

Nám á málm- og véltæknibraut er 235 einingar. Kjarni brautarinnar er 105 einingar, kjörsvið 45 einingar og starfsþjálfun 80 einingar. Nemendur velja 5 einingar í bundnu áfangavali. Námslok eru á þriðja hæfniþrepi.

Heildarnámstími er fjögur ár. Gert er ráð fyrir að námi í skóla geti vel undirbúinn nemandi lokið á þremur árum (sex önnum). Til að ljúka námi í blikksmíði þarf að ljúka öllum hlutum náms, þ.m.t. vinnustaðanámi/starfsþjálfun sem staðfest er með lokum á rafrænni ferilbók. Nemendur geta lokið hluta af starfsþjálfun sinni samhliða skóla og þannig stytt námstímann. Eftir útskrift getur nemandinn þreytt sveinspróf.

 

Annarplan

 Nánari upplýsingar varðandi blikksmíði veitir sviðsstjóri verknáms

Getum við bætt efni síðunnar?