Húsasmíði
Húsasmíði er alltaf í boði á hverri önn hægt er að sjá á annarplani hvaða önn er í boði hvenær. Áður enn farið er á húsasmíðabraut þarf að ljúka grunnnámi bygginga - og mannvirkjagreina sem er ein önn á hausti og er námið því í heildina þrjú ár. Að námi loknu geta nemendur tekið sveinspróf og byrjað að vinna sem húsasmiðir eða haldið áfram í frekara námi. Þetta nám er frábær grunnur, hvort sem þú vilt fara beint út á vinnumarkaðinn eða undirbúa þig fyrir háskólanám.
Þeir sem ætla á húsasmíða braut skrá sig í grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina sem er ein önn á haustönn
Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina
Meginmarkmið grunnnáms bygginga- og mannvirkjagreina er að veita nemendum sýn á atvinnugreinina og störf innan hennar. Lögð er áhersla á kennslu undirstöðuatriða í efnisfræði, áhalda- og tækjafræði, teikningum, verktækni og vinnuvernd. Í lok grunnnámsins eiga nemendur að vera hæfari til að velja sér sérsvið innan bygginga- og mannvirkjaiðnaðar og hafa fengið faglegan grunn til að byggja áframhaldandi nám á. Námið er ein önn.
Brautarlýsing
Húsasmiður er lögverndað starfsheiti og húsasmíði er löggild iðngrein. Markmið námsins er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem húsasmiðir inna af hendi, þ.e. nýsmíði og viðhald mannvirkja, bæði stór og smá. Námið samanstendur af bóklegu námi í skóla og verklegu námi á vinnustöðum. Nám sem fer fram á vinnustað er samtvinnað bóklega náminu út námstímann og hefur að markmiði að þjálfa nemendur í vinnuferlum, auka vinnufærni þeirra á atvinnumarkaði, þjálfa samvinnu á vinnustað og auka getu nemenda til þess að takast á við raunverulegar aðstæður úti í atvinnufyrirtækjum.
Fyrsta önnin felst í aðfararnámi byggingagreina, þ.e. húsasmíði, húsgagnasmíði, málaraiðn, múrsmíði, pípulagningum og dúkalögn. Önnin er sameiginlegur grunnur fyrir byggingagreinarnar og inniheldur kjarnagreinar og iðnnámsgreinar, bæði bóklegar og verklegar. Næstu fjórar annir innihalda faggreinar (iðnnámsgreinar) í húsasmíði, auk kjarnagreina sé þeim ólokið.
Námið felst í bóknámi og verknámi í skóla og starfsþjálfun á vinnustað (rafræn ferilbók). Til að ljúka námi í húsasmíði þarf að ljúka öllum hlutum náms, þ.m.t. vinnustaðanámi/starfsþjálfun sem staðfest er með lokum á rafrænni ferilbók.Náminu lýkur með burtfararprófi úr framhaldsskóla.
Miðað er við að nemandi sé búinn að uppfylla að lágmarki 80% af hæfniviðmiðum í ferilbók faggreinar til að innritast í lokaáfanga brautar.
Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.
Nánari upplýsingar um inntökuskilyrði er hægt að nálgast hér.
Varðandi inntökuskilyrði á lokaönn:
Miðað er við að nemandi sé búinn að uppfylla að lágmarki 80% af hæfniviðmiðum í ferilbók faggreinar til að innritast í lokaáfanga brautar.
Annarplan
|
Grunnnám bygginga-og mannvirkjagreina |
|
|
|
|
|
|
Greinar |
1.önn
|
2.önn
|
3.önn
|
4.önn
|
5.önn
|
6.önn
|
|
Enska |
ENSK2LS05 |
||||||
Íslenska |
ÍSLE2HS05 |
||||||
Stærðfræði |
STÆF2RH05 |
||||||
Íþróttir |
HEIL1HH04 |
HEIL1HD04 |
|||||
Lífsleikni |
LÍFS1SN02 |
LÍFS1SN01 |
|||||
Skyndihjálp |
SKYN2EÁ01 |
||||||
Áætlanir og gæðas. |
ÁÆST3VG05 |
||||||
Burðarvirki |
BURÐ3BK03 |
||||||
Efnisfræði |
EFRÆ1BV05 |
||||||
Framkvæmdir |
FRVV1SR03 |
||||||
Grunnteikning |
GRUN1FF04 |
GRUN2ÚF04 |
|||||
Innanhúsklæðingar |
INNA2IK03 |
||||||
Lokaverkefni |
LOVE3ÞR06 |
||||||
Mótavinna |
MÓTA3US03 |
||||||
Teikningar |
TEIV2BT05 |
TEIV2GH05 |
TEIV3ÞT05 |
||||
Trésmíði |
TRÉS1AB01-TRÉS1SL06 |
TRÉS2NT04-TRÉS2PH10 |
TRÉS2II10 |
TRÉS3SH03 |
|||
Timburhús |
TIMB3VS10 |
||||||
Tölvustýrðar vélar |
TSVÉ2FT02 |
||||||
Starfsþjálfun |
STAÞ2HS20-STAÞ2HS30-STAÞ3HS30 |
||||||
Viðhald |
VIÐB3VE03 |
||||||
Frjálst val |
5 ein. |
||||||
Einingar |
30 |
29 |
25 |
23 |
80 |
25 |
212 |
Viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu starfsnámi
Markmið með námsleiðinni er að uppfylla þær lágmarkskröfur sem aðalnámskrá framhaldsskóla setur til stúdentsprófs. Sérhæfing nemandans er fólgin í starfsnámi hans. Áfangar starfsnámsbrautar í þeim greinum sem taldar eru upp hér í töflu teljast með, t.d. ENSK2LS05 og ÍSLE2HS05 sem finna má á flestum starsfnámsbrautum, og þurfa nemendur því aðeins að bæta við sig þeim einingum í töflunni sem þeir hafa ekki þegar lokið í sínu starfsnámi.
Greinar |
||||
Íslenska | ÍSLE2HS05 | ÍSLE2KB05 | ÍSLE3BL05 | Íslenska á 3.þrepi |
Enska | ENSK2LS05 | |||
Danska | DANS2OM05 | |||
Stærðfræði | STÆF2xx05 (5 ein/2. þrep) |
|||
Ensku-/stærðfræðival (2./3. þrep) |
ENSK/STÆF 5 einingar |
ENSK/STÆF 5 einingar |
ENSK/STÆF 5 einingar |
|
Bóknámsval | 5 eininga val |