Fara í efni

Íslenskubrú

Námsbrautin er ætluð nemendum af erlendum uppruna með litla sem enga þekkingu á íslensku. Nemendur með annað móðurmál en íslensku hafa ólíkan bakgrunn hvað varðar nám, menningu og tungumál. Þeir hafa mismikla undirstöðu í eigin tungumáli, læsi og námi og eru því misjafnlega undirbúnir að takast á við nýtt tungumál í nýju umhverfi. Þeir hafa einnig verið mislengi á Íslandi og fengið ólík tækifæri til að kynnast íslenskri tungu. Saman fara markmið þar sem leitast er við að þjálfa nemendur í íslensku máli, sem og menningarfærni, og með því stuðla að félagslegri vellíðan nemandans. Þau fela í sér að nýja tungumálið sé lykill að íslensku samfélagi, skólastarfi, atvinnuumhverfi og brúi ólíka menningarheima. Með námi á brautinni er stefnt að því að nemendur verði sem best í stakk búnir til að taka virkan þátt í íslensku, lýðræðislegu þjóðfélagi.

Námsbrautin er opin þeim nemendum sem hafa annað móðurmál en íslensku eða að hafa alist upp erlendis.

Sam­kvæmt íslenskum lögum raðast nem­endur í for­gangsröð eftir aldri þannig að þeir yngstu hafa mestan for­gang. Brautin er ætluð 16 - 20 ára nem­endum.  

Fyrir nánari upplýsingar hafið sam­band við Jóhannu Björk Sveinbjörnsdóttur, verkefnastjóri erlendra nema. 

Íslenskubrú er námsleið sem skipt er á fjórar annir þar sem áherslan er á fjölbreytta íslenskukennslu. Með námi á brautinni er nemendum gert kleift að auka möguleika sína til náms og starfa í íslensku samfélagi. 

Við námslok á íslensku­braut er reiknað með að nem­endur séu und­ir­búnir fyrir frekara nám í íslenskum fram­halds­skólum eða hafi bætt svo mjög íslenskukunn­áttu sína að hún nýtist þeim á vinnu­markaði.

 

Greinar 

1.önn

2.önn

3.önn 

4.önn 

 
Enska       ENSK1EN05  
Íslenska bókl. ÍSAN1BA05 ÍSAN1BB05 ÍSAN2BC10 ÍSAN3BD10  
Íslenska tal ÍSAN1TA05 ÍSAN1TB05 ÍSAN2TC05 ÍSAN3TD05  
Heilsa og lífsstíll HEIL1HH04 HEIL1HD04      
Íslenska verkleg NÁSS1SÖ06        
Hreyfing     Hreyfing Hreyfing  
Lífsleikni LÍFS1AA02 LÍFS1AB02      
Menningarlæsi   ÍSAN1ML05      
Náttúrulæsi     ÍSAN1NL05    
Námsstuðningur     STUÐ1AA01 STUÐ1BB01  
Stærðfræði   ÍSAN1ST05      
Upplýsingatækni ÍSAN1UT03        
Frjálst val     5 einingar 10 einingar  
Einingar samtals 25 26 27 32  

 

Getum við bætt efni síðunnar?