Vélvirkjun
Nám í vélvirkjun færir nemendur þekkingu og færni til að vinna að viðhaldi véla, billanaleit og stýringu. Námið er bæði verklegt pg bóklegt og geta nemendur tekið sveinspróf að loknu námi. Áður en nemendur hefja nám í vélvirkjun þurfa þeir að taka grunnnám málm-og tæknigreina
Nemendur sem ætla í vélvirkjun sækja um nám í grunnnámi málm-og tæknigreina.
Grunnnám málm- og tæknigreina
Grunnnám málm- og véltæknigreina er eins árs nám og skilar nemendum hæfni á 2. þrepi. Námið er bæði bóklegt og verklegt. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar, byggja m.a. á leiðsagnarmati og miðast við að allir nemendur eigi kost á að nýta hæfileika sína og fá endurgjöf á verkefni sín. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og vinnusemi nemenda. Námssamfélagið gengur út á samvinnu kennara og nemenda sem skapar jákvætt og uppbyggilegt umhverfi til náms og starfa.
Brautarlýsing
Nám í málm- og véltæknigreinum er sambland af verk- og bóknámi sem miðar að því að búa nemandann undir líf og störf í nútíma lýðræðissamfélagi þar sem reynir á gagnrýna hugsun og upplýsingaöflun auk virkrar þátttöku í mótun þess samfélags sem nemandinn er hluti af. Markmið náms í vélvirkjun er að að gera nemandann færan um að uppfylla hæfnikröfur sem gerðar eru til vélvirkja en þeir fást m.a. við uppsetningu, viðgerðir, viðhald, endurnýjun og þjónustu á hvers kyns vél- og tæknibúnaði t.d. í skipum, vinnslustöðvum, vinnuvélum, verksmiðjum, orkuverum og orkuveitum.
Námið er skipulagt sem 6 annir í skóla auk starfsþjálfunar og ræður framvinda rafrænnar ferilbókar tíma á starfsnámsstað. Til að ljúka námi í vélvirkjun þarf að ljúka öllum hlutum náms, þ.m.t. vinnustaðanámi/starfsþjálfun sem staðfest er með lokum á rafrænni ferilbók. Eftir útskrift getur nemandinn þreytt sveinspróf.
Efnisgjöld eru innheimt fyrir ákveðna áfanga og má sjá lista yfir það hér.
Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.
Annarplan
Ö | Vélvirkjun (247 ein.) (Nánari brautarlýsing hér) | EI. | ||||||||
1.ö | ENSK2LS05 | GRUN1FF04 | HEIL1HH04 | LÍFS1SN02 | LOGS1PS03 | SMÍÐ1NH05 | STÆF2RH05 | SKYN2EÁ01 | VÉLS1GV05 | 34 |
2.ö | GRUN2ÚF04 | HEIL1HD04 | HLGS2MT03 | ÍSLE2HS05 | LÍFS1SN01 | RAMV1HL05 | SMÍÐ2NH05 | VÉLS2KB05 | 32 | |
3.ö | EÐLI2AO05 | EFMA1JS04 | RAFS1SE03 | RAMV2MJ05 | VÉLF1AE05 | VÉLS2TK05 | 27 | |||
4.ö | IÐNT3AC05 | RAMV2SR05 | SMÍÐ3VV05 | STÝR1LV05 | VÉLF2VE05 | 25 | ||||
5.ö | HLGS2SF04 | KÆLI2VK05 | REIT2AR05 | LAGN3RS04 | VÉLS3VK05 | 23 | ||||
STAÞ1MS20 | STAÞ2MS20 | STAÞ2VS20 | STAÞ3MS20 | Starfsþjálfun | 80 | |||||
6.ö | IÐNT3CN04 | RÖKR3IS05 | VÉLT3ÁL04 | VIÐH3VV04 | VÖRS1VÖ04 | 5.ein óbund. | 26 |
Síða uppfærð 25.09.2024 (ÓKR)