Fara í efni

Bifvélavirkjun

Nemendur sem ætla í nám í bifvélavirkjun byrja í grunnnámi málm-og véltæknigreina sem er tveggja anna grunnnám. Að því loknu geta nemendur hafið nám í bifvélavirkjun. Námið er sex annir í skóla auk starfnáms. Ekki er tekið inn nýja nemendur í námið á hverju hausti. Upplýsingar um hvenær tekið er inn í námið er hægt að fá hjá sviðstjóra. 

Nemendur sem ætla í bifvélavirkjun sækja um grunnnám málm-og tæknigreina í umsókn.

Grunnnám málm- og tæknigreina

Grunnnám málm- og véltæknigreina er eins árs nám og skilar nemendum hæfni á 2. þrepi. Námið er bæði bóklegt og verklegt. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar, byggja m.a. á leiðsagnarmati og miðast við að allir nemendur eigi kost á að nýta hæfileika sína og fá endurgjöf á verkefni sín. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og vinnusemi nemenda. Námssamfélagið gengur út á samvinnu kennara og nemenda sem skapar jákvætt og uppbyggilegt umhverfi til náms og starfa. 

Brautarlýsing

Bifvélavirki er lögverndað starfsheiti og bifvélavirkjun er löggilt iðngrein. Markmið námsins er að gera nemendum kleift að takast á við hin ýmsu viðfangsefni sem bifvélavirkar inna af hendi, það er viðhald, viðgerðir og breytingar á ökutækjum. 

Nánari upplýsingar um brautina er hægt að nálgast hér

Inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.

ATH! Miðað er við að nem­andi sé búinn að stofna ferilbók og langt kominn með að fylla inn í hana til að inn­ritast á lokaárið (5. og 6.önn).

Nánari upplýsingar um inntökuskilyrði er hægt að nálgast hér.

Námið

Nám í bifvélavirkjun eru sex annir í skóla sem felast í faggreinanámi bifvélavirkjunar auk kjarnagreina sé þeim ekki lokið. Námið felst í bók- og verklegu námi. Námi í skóla lýkur með burtfaraprófi úr framhaldsskóla.  Til að ljúka námi í bifvélavirkjun þarf að ljúka öllum hlutum náms, þ.m.t. vinnustaðanámi/starfsþjálfun sem staðfest er með lokum á rafrænni ferilbók.  Eftir útskrift getur nemandinn þreytt sveinspróf.

Annarplan

Greinar

1.önn

2.önn

3.önn

4.önn

Starfsþj/feril bók

5.önn

6.önn

 

Enska ENSK2LS05              
Íslenska   ÍSLE2HS05            
Stærðfræði STÆF2RH05          
Íþróttir HEIL1HH04 HEIL1HD04            
Lífsleikni LÍFS1SN02 LÍFS1SN01
           
Efnisfræði   EFMA1JS04          
Eðlisfræði     EÐLI2AO05          
Smíðar SMÍÐ1NH05 SMÍÐ2NH05            
Vélstjórn VÉLS1GV05              
Grunnteikning GRUN1FF04 GRUN2ÚF04            
Logsuða LOGS1PS03              
Hlífðargassuða   HLGS2MT03       HLGS2SF04    
Rafmagnsfræði   RAMV1HL05 RABV2AO05 RABV2BO05  

RABV3AO05

RABV3BO05

RABV3CO05

RABV4AO05

 
Skyndihjálp     SKYN2EÁ01          
Gírkassar     GKKV2AO05          
Brunahreyflar     HREV2AO05     HREV3AO05-HREV3BO05 HREV4AO05  
Hemlabúnaður     UHÞV2AO05          
Verkstæðisfræði     VSFV2AO05          
Miðstöð             MILV3AO05  
Drifbúnaður       GKDVBO05        
Undirvagn       UFBV2AO05-USTV2AO05   URHV3AO05    
Þjónusta       ÞJÁV2AO05        
Rekstrartækni             ROGV2AO03  
Raf- og blendings.             RBBV3CO05  
Sjálf- og beinskipting             SGBV3AO05  
Starfsþjálfun          90 ein.      
Einingar 33 27 35 25 90 29 33 272

 

Viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu starfsnámi

Markmið með námsleiðinni er að uppfylla þær lágmarkskröfur sem aðalnámskrá framhaldsskóla setur til stúdentsprófs. Sérhæfing nemandans er fólgin í starfsnámi hans. Áfangar starfsnámsbrautar í þeim greinum sem taldar eru upp hér í töflu teljast með, t.d. ENSK2LS05 og ÍSLE2HS05 sem finna má á flestum starsfnámsbrautum, og þurfa nemendur því aðeins að bæta við sig þeim einingum í töflunni sem þeir hafa ekki þegar lokið í sínu starfsnámi.

Greinar

       
Íslenska ÍSLE2HS05 ÍSLE2KB05 ÍSLE3BL05 Íslenska á 3.þrepi
Enska ENSK2LS05      
Danska DANS2OM05      
Stærðfræði STÆF2xx05
(5 ein/2. þrep)
     
Ensku-/stærðfræðival
(2./3. þrep)
ENSK/STÆF
5 einingar
ENSK/STÆF
5 einingar
ENSK/STÆF
5 einingar
 
Bóknámsval 5 eininga val      
Getum við bætt efni síðunnar?