Múraraiðn
Múriðn er kennd í lotunámi. Stefnt er að því að bjóða upp á faggreinar múrariðn aftur á haustönn 2025.
Áður enn farið er í nám í múriðn þarf að ljúka grunnnámi bygginga - og mannvirkjagreina sem er ein önn á hausti og er námið því í heildina fjórar annir auk starfsnáms. Að námi loknu geta nemendur tekið sveinspróf og byrjað að vinna sem múrarar.
Þeir sem ætla í nám við faggreinar múriðn þurfa að vera búnir með grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina.
Grunnnám bygginga-og mannvirkjagreina
Meginmarkmið grunnnáms bygginga- og mannvirkjagreina er að veita nemendum sýn á atvinnugreinina og störf innan hennar. Lögð er áhersla á kennslu undirstöðuatriða í efnisfræði, áhalda- og tækjafræði, teikningum, verktækni og vinnuvernd. Í lok grunnnámsins eiga nemendur að vera hæfari til að velja sér sérsvið innan bygginga- og mannvirkjaiðnaðar og hafa fengið faglegan grunn til að byggja áframhaldandi nám á.
Brautarlýsing
Múrari býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og leiðbeina öðrum, þekkir ábyrgð sína, siðferðilega stöðu og getur lagt mat á eigin vinnu. Múrari þekkir öll helstu efni sem notuð eru við múrverk úti og inni. Múrari getur skipulagt vinnu við jarðvegsfyllingar í mannvirkjagrunnum, lagt steypustyrktarjárn og bendinet í steinsteypuvirki, annast blöndun og niðurlagningu steinsteypu, hlaðið úr steini og veggjaeiningum, múrhúðað utan og innanhúss, lagt flísar innanhúss og utan, lagt mat á, valið efni og gert við múr- og steypuskemmdir, leiðbeint húseigendum um val og á efni til nýbygginga og viðhalds. Múrari er löggilt starfsheiti.
Áætlaður námstími er 4 ár og þar af 2½ ár í skóla. Fyrsta önnin felst í aðfararnámi byggingagreina og er sameiginlegur grunnur þeirra, þ.e. húsasmíði, húsgagnasmíði, málaraiðn, múrsmíði, pípulagningar og dúkalögn. Næstu fjórar annir innihalda faggreinar í múraraiðn, auk kjarnagreina sé þeim ólokið. Námið felst í bóknámi og verknámi í skóla og starfsþjálfun á vinnustað.
Til að ljúka námi í múriðn þarf að ljúka öllum hlutum náms, þ.m.t. vinnustaðanámi/starfsþjálfun sem staðfest er með lokum á rafrænni ferilbók. Eftir útskrift getur nemandinn þreytt sveinspróf.
Nemendur geta einnig stefnt að stúdentsprófi samhliða námi. Náminu lýkur með burtfararprófi úr framhaldsskóla og sveinsprófi þegar nemandinn er tilbúinn.
Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði eru grunnskólapróf. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í kjarnagreinum þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla.
Annarplan
Grunnnám byggingagreina |
Múraraiðn Faggreinar |
||||
1.önn |
2.önn Haustönn 2025 |
3.önn | 4.önn | Starfsþjálfun | Starfsþjálfun er allt að 72 vikur á starfsnámsstöðum. Samning (ferilbók) þarf að gera áður en nemandi hefur 2. önn námsbrautar. |
EFRÆ1BV05 | ÁHTÆ1MR04 | HLOE2MR03 | LOKA3MR07 | STAÞ1MR20 | |
FRVV1SR03 | JABE2MR06 | TEIK3MR04 | MSST3MR03 | STAÞ2MR20 | |
GRUN1FF04 | STVI1MR03 | TEIK3MR04 | ÁÆST3SA04 | STAÞ2MR30 | |
HEIL1HD04 | TEIK2MR04 | VLMÚ1MR04 | UTMV3MR04 | STAÞ3MR30 | |
LÍFS1SN02 | VLMÚ1MR05 | ENSK2LS05 | STAÞ3MR30 | ||
STÆF2RH05 | GRUN2ÚF04 | Vinsamlegast athugið að uppröðun áfanga á önnum gæti breyst | VALXX05 | ||
TRÉS1AB01 | ÍSLE2HS05 | ||||
TRÉS1SL06 | SKYN2EÁ01 | ||||
Síða uppfærð 25.09.2024