Húsasmíði - Kvöldnám
ATH! Hópur byrjaði á haustönn 2023 og næst er stefnt á að byrja með hóp haustönn 2025.
Miðað er við að nemandi hafi náð 22 ára aldri og/eða hafi viðeigandi starfsreynslu. Nemendur sem eru að vinna í faginu ganga fyrir í inntöku. Nemendur sem hafa undirgengist raunfærnimat fá viðkomandi áfanga metna. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.
Athugið að auk ofangreindra áfanga þurfa nemendur að ljúka ÍSLE2HS05, ENSK2LS05, STÆF2RH05 og SKYN2EÁ01 til að uppfylla kröfu brautarinnar. Almennar greinar, þurfa nemendur að taka í dagskóla, fjarnámi eða hjá símenntunarmiðstöðvum en æskilegt er að almennum greinum sé að mestu lokið.
Miðað verður við kennslu faggreina þrjá daga í viku mánudaga til miðvikudaga klukkan 17:00- 21:00. Almennar greinar, t.d. íslensku og stærðfræði, þurfa nemendur að taka í dagskóla, fjarnámi eða hjá símenntunarmiðstöðvum en æskilegt er að almennum greinum sé að mestu lokið.
Námið er fjórar annir í skóla. Til viðbótar við skólatímann kemur áskilinn samningur hjá meistara þar sem nemendur vinna að verkþáttum skv. rafrænni ferilbók
Til að ljúka námi í húsasmíði þarf að ljúka öllum hlutum náms, þ.m.t. vinnustaðanámi/starfsþjálfun sem staðfest er með lokum á rafrænni ferilbók. Eftir útskrift getur nemandinn þreytt sveinspróf.
ANNARPLAN KVÖLDSKÓLA HÚSASMÍÐI | |||||
1.önn | 2.önn | 3.önn | 4.önn | ||
GRUN1FF04 | GRUN2ÚF04 | TEIV2BT05 | ÁÆST3VG05 | ||
TRÉS1AB01 | BURÐ3BK03 | TEIV2GH05 | LOVE3ÞR06 | ||
TRÉS1SL06 | TIMB3VS10 | INNA2IK03 | MÓTA3US03 | ||
TRÉS2NT04 | TSVÉ2FT02 | TRÉS2II10 | TEIV3ÞT05 | ||
TRÉS2PH10 | EFRÆ1BV05 | FRVV1SR03 | TRÉS3SH03 | ||
VIÐB3VE03 |