LAGN3RS04 - Smíða- og lagnateikningar
Undanfari : Að hafa lokið grunndeild málm- og véltæknigreina.
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum kynnast nemendur því hvernig leggja á rörakerfi samkvæmt ísómetrískum teikningum. Jafnframt læra þeir að teikna og útfæra smíða- og lagnateikningar fyrir einstök verkefni. Þeir skulu þekkja efnisstaðla um rör, suðufittings, flangsa, bolta og pakkningarefni og geta á eigin spýtur valið smíðaefni til skilgreindra verka. Ennfremur þjálfast þeir í að skipuleggja vinnu sína m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi.
Einingar: 4