ÞÝSK1RS05 - Lokaáfangi í þýsku
Undanfari : ÞÝSK1HT05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Lokaáfangi þar sem virki orðaforðinn er notaður markvisst í tjáningu og aukið við hann.Viðfangsefnin tal, hlustun og ritun verða umfangsmeiri og flóknari, þar sem meiri áhersla verður lögð á að tjá sig skriflega og munnlega um ýmis efni með hagnýtum orðaforða. Nemandinn öðlast dýpri þekkingu á tungumálinu og ýmsum afbrigðum þess. Nemandanum er gert að tileinka sér nýjan orðaforða sem nýtist í að tjá sig, eiga samtöl og vera sjálfbjarga við sérstakar aðstæður. Haldið er áfram að vinna með framburð og skilning. Nemandinn öðlast dýpri þekkingu á tungumálinu og afbrigðum þess. Saga þýskumælandi landa skoðuð með sérstöku tilliti til lýðræðis og mannréttinda. Auknar kröfur um eigin ábyrgð á náminu og sjálfstæð vinnubrögð eru meðal lykilþátta áfangans. Nemandinn er hvattur til að nýta sér upplýsingatækni og önnur hjálpargögn í náminu.
Einingar: 5