VÉTÆ2VÞ02 - Véla- og tækjafræði fyrir verslunarþjóna
Vélafræði, tækjafræði
Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Þrep: 2
Í áfanganum er fjallað um helstu vélar og tæki sem notuð eru í matvöruverslunum, notkun þeirra og rétta hirðingu.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi þessa að hirða vélar og tæki rétt og reglulega, í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda eða vélasala,
- fyrirbyggjandi aðgerðum til að varast slys, óhöpp og mengunaráhættu vegna rangrar notkunar véla og tækja, í samræmi við reglur og ábendingar Vinnueftirlits,
- notkun þeirra véla og tækja sem notuð eru í matvælaverslunum.
Leikniviðmið
- fylgja skriflegu áhættumati Vinnueftirlitsins, sem unnið hefur verið fyrir vinnustaðinn,
- umgangast tæki, vélar og tól af þekkingu og alúð, í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda eða vélasala.
Hæfnisviðmið
- viðhafa og leiðbeina um rétt vinnubrögð við notkun tækja,
- umgangast þann tækjakost sem notaður er í matvælaverslunum með fyrirbyggjandi hætti, s.s. með tilliti til mögulegrar bilunar, slysahættu og mengunarhættu, í samræmi við ráðleggingar framleiðanda eða vélasala þar um.