VÖNE2VÞ04 - Vöru- og neytendafræði fyrir verslunarþjóna
Neytendafræði fyrir verslunarþjónar, Vörufræði
Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Þrep: 2
Í áfanganum er fjallað er um vöruflokka úr dýra- og jurtaríkinu, framleiðslu þeirra ásamt neytendafræði. Nemendur eiga að kunna skil á reglugerð um merkingu matvæla og aukefni í matvælum. Þá verður einnig fjallað um vöruflokka er tengjast sérfæði hverskonar. Nemendur eiga að þekkja neytendalöggjöfina.
Þekkingarviðmið
- þeim vöruflokkum sem tengjast fjölbreyttu sérfæði,
- þeim vörumerkingum, vottunarmerkjum, umhverfismerkjum og sérfæðismerkingum sem í gildi eru samkvæmt lögum um neytendavernd, neytendaþjónustu og neytendarétti.
Leikniviðmið
- leiðbeina viðskiptavinum um val á sérfæði með hliðsjón af þörfum hvers og eins,
- fræða viðskiptavini um þýðingu vörumerkinga svo sem um skráargatið, Uið o.fl.
- upplýsa viðskiptavinum á réttindi þeirra við vörukaup og vöruskil,
- nota upplýsingatæknina til þess að fylgjast með nýjungum á sviði vörumerkinga.
Hæfnisviðmið
- upplýsa viðskiptavini um ólík framleiðsluferli matvara og mismun á gæðum þeirra,
- benda viðskiptavinum á sérfæðisvörur og lýsa innihaldi þeirra,
- veita viðskiptavinum gagnlegar upplýsingar um ólíkar merkingar á umbúðum matvæla,
- veita viðskiptavinum aðstoð ef upp koma spurningar varðandi val á milli sambærilegra vörutegunda innan sömu vöruflokka,
- benda viðskiptavinum á bestu gæði vöru.