STÞV2VÞ20 - Starfsþjálfun á vinnustað
Starfsþjálfun fyrir verlsunarþjóna
Einingafjöldi: 20
Þrep: 2
Forkröfur: Öllu fagbóklegu og verklegu námi í skóla skal vera lokið.
Þrep: 2
Forkröfur: Öllu fagbóklegu og verklegu námi í skóla skal vera lokið.
Lögð er áhersla á að nemandi læri til verka á ákveðnum vinnustað, svo sem að læra og þjálfa viðeigandi vinnubrögð, notkun verkfæra og beitingu réttra aðferðir við störf sín. Nemendur er ætlað að efla sjálfstæði sitt og frumkvæði með þátttöku í ýmsum störfum. Nemandi lærir að fylgja þeim samskiptareglum sem gilda á vinnustaðnum og fræðist um réttindi og skyldur starfsmanna. Nemandi vinnur undir leiðsögn reynslumikils starfsmanns, fagmanns eða verslunarstjóra í viðkomandi fyrirtæki.
Þekkingarviðmið
- helstu störfum sem unnin eru í fyrirtækinu tengdu matvælum,
- helstu samskiptareglum á vinnustaðnum,
- réttindum og skyldum starfsmanna og viðskiptavina.
Leikniviðmið
- velja á milli og beita viðeigandi vinnubrögðum, verkfærum og aðferðum hverju sinni,
- vinna sjálfstætt,
- koma fram við samstarfsfólk og fjölbreytilegan hóp viðskiptavini af virðingu.
Hæfnisviðmið
- eiga heiðarleg og góð samskipti við samstarfsfólk og viðskiptavini,
- að vera stundvís og samviskusamur starfsmaður.
- auka vinnufærni sína og sjálfstæði á vinnumarkaði.