SVIÐ2ÚT07 - Tæknigrunnur 1 - Útlitshönnun
Útlitshönnun
Einingafjöldi: 7
Þrep: 2
Þrep: 2
Í áfanganum er lagður tæknilegur grunnur að sköpun heildarútlits persónu fyrir sviðs-listaverk. Kennsla fer fram á hársnyrtibraut og á hönnunar- og textílkjörsviði listnámsbrautar. Fagkennari á hársnyrtibraut kennir grunntækni við hárkollugerð, gerð gerviskeggs- og barta svo og undirstöðuatriði í leikhúsförðun. Einnig eru kenndar aðferðir við að vinna gervieyru, vörtur, sár og gervinef. Fagkennari á hönnunar- og textílkjörsviði gefur innsýn í búningahönnun með áherslu á markvissa hugmyndavinnu út frá ákveðnum kveikjum og fjallar um þýðingu þess fyrir sviðsverk að gera persónuleika skil í gegnum sjónræna heild. Unnið er út frá ákveðnu stíltímabili eða út frá frjálsri sköpun og fjallað um mismunandi efnisval, litasamsetningar, snið og form.
Í áfanganum eru undirstöðuatriði í áætlanagerð, varðandi undirbúning og framkvæmd útlitshönnunar, kynnt og áhersla lögð á mikilvægi þess að aðskilja sérhvern verkhluta frá heild, greina hvern hluta fyrir sig og raða þeim síðan aftur saman í heildstæða mynd.
Þekkingarviðmið
- Þýðingu þess fyrir sviðsverk að gera persónuleika skil í gegnum sjónræna heild,
- undirstöðuatriðum í gerva-og útlitshönnun fyrir sviðslistaverk,
- skipulagningu verkferla við útlitshönnun,
- þýðingu opinnar og leitandi hugsunar við útlitshönnun fyrir sviðsverk.
Leikniviðmið
- Beita hagnýtum aðferðum við að skapa heildarútlit persónu fyrir sviðslistaverk,
- draga fram persónuleika með leikhúsförðun og búningum,
- aðstoða við að vinna hárkollur, gerviskegg -og barta, gervieyru, nef sem hluta af persónusköpun,
- vinna markvissa hugmyndavinnu við sköpun heildarútlits.
Hæfnisviðmið
- Aðstoða við útlitshönnun í leikhúsi eða fyrir önnur sviðslistaverk,
- skapa heildarútlit fyrir ákveðinn karakter, bæði úr frá frjálsri sköpun eða “fantasiu” og út frá fyrirframgefnum forsendum
- vinna að hönnun og/eða vinnslu búninga, gerva, förðunar og annarra útlitslegra þátta fyrir áhugaleikhús eða önnur sviðsverk unnin af áhugamönnum.