SSVL1LG03 - Saga sviðslista - Leiklistarsaga frá Grikkjum til 1900
Leiklistarsaga frá Grikkjum til 1900
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Þrep: 1
Fjallað verður um sögu leiklistar á vesturlöndum, frá Grikklandi til forna til raunsæisleikhúss um aldamótin 1900. Skoðað verður hvernig leiklist tekur á sig margvísleg og breytileg form á ólíkum tímum og hlutverk hennar og staða breytist í samhengi við menningu og samfélag hvers tíma. Staldrað er við trúarlega leiklist miðalda-, hirð- og alþýðuleiklist endurreisnarinnar, leikhús á tímum Shakespeares á Englandi, barokkleikhús, nýklassisma í Frakklandi og vöxt þjóðleikhúsa í Evrópu á nítjándu öld. Lögð er áhersla á að skoða stöðu leiklistar í samfélaginu og hlutverk hennar í menningarlegu samhengi.
Þekkingarviðmið
- Helstu þáttum í sögu leiklistar á vesturlöndum fram til upphafs tuttugustu aldar,
- breytilegu hlutverki og fjölbreyttri stöðu leiklistar á mismunandi tímum,
- áhrifum breytinga í samfélagi, stjórnafari og menningu á leiklist,
- mikilvægi gagnrýninnar hugsunar í umfjöllun um leiklistarsögu.
Leikniviðmið
- Nota viðurkenndar heimildir til að mynda sér rökstudda skoðun,
- afla sér fjölbreyttra heimilda um viðfangsefnið,
- nýta fræðilegt efni jafnt á íslensku sem erlendum tungumálum,
- beita gagnrýninni hugsun í umræðum og umfjöllun um leiklistarsögu,
- taka þátt í umræðum um sögu leiklistar og sviðslistir í eigin samfélagi.
Hæfnisviðmið
- Mynda sér skoðun á ólíkum straumum og stefnum í sviðslistum,
- tjá skoðanir sínar á rökstuddan hátt í ræðu og riti,
- beita gagnrýnni hugsun á markvissan hátt í umfjöllun um leiklistarsögu,
- vinna fræðilegt verkefni byggt á sjálfstæðri heimildavinnu.