HUGV1SH05 - Hugmyndavinna
Skapandi hugsun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Þrep: 1
Í áfanganum er fjallað um aðferðir til að efla skapandi hugsun, leikni í þróun hugmynda og hæfni til að koma þeim á framfæri. Tjáning er bundin við stað og hugsuð út frá rými (in situ) í formi gjörninga og innsetningarverka. Áhrif líkama, hlutar í rými, lýsingar og hljóðs og gagnvirkni alls þessa eru grundvallaratriði. Lögð er áhersla á að skoða margvíslegar útfærsluleiðir, þar sem nemendur vinna bæði sjálfstætt og í samvinnu við aðra. Fjallað er um ýmsar aðferðir við að skrásetja hugmyndir og þróa þær í gegn um leik og tilraunir. Rík áhersla er lögð á mikilvægi ímyndunaraflsins í sköpunarferlinu og fjallað um ákveðnar aðferðir til að virkja ímyndunaraflið.
Þekkingarviðmið
- Hugtökunum hugkortum, hugstormi, spuna, þemavinnu (synektík),
- þeim þáttum sem skipta máli varðandi andrúmsloft og rýmismyndun s.s. litum, formi, ljósi, hreyfingu og hljóði,
- markvissum leiðum til að halda utan um hugmyndir sínar og úrvinnslu þeirra,
- þýðingu fjölbreyttrar gagnasöfnunar við þróun hugmynda,
- eigin persónulegu leiðum við hugmyndavinnu,
- möguleikum rýmis, ljóss, hljóðs og hreyfingar við úrvinnslu og framkvæmd hugmynda,
- samhenginu á milli hugmyndar, efnis, rýmis, tækni, aðferða og niðurstöðu,
Leikniviðmið
- Vinna með ferlið; hugmynd – úrvinnsla – afurð,
- beita opinni og leitandi hugsun við þróun hugmynda,
- þróa hugmyndir í gegn um tilraunir og leik,
- sjá skapandi möguleika í mistökum,
- skýra hugmyndir sínar á munnlegan, skriflegan, leikrænan og myndrænan hátt,
- beita margvíslegum aðferðum til að virkja ímyndunaraflið, bæði þekktum aðferðum annarra og sínum eigin,
- koma auga á óvænt samhengi og gera það sýnilegt.
Hæfnisviðmið
- Þróa hugmyndir sínar á opinn og skapandi hátt,
- kynna hugmyndir sínar á fjölbreyttan hátt,
- sjá margvíslega möguleika í notkun rýmis, ljóss, hljóðs og hreyfingar við úrvinnslu og framkvæmd hugmynda,
- beita sjálfstæði, frumkvæði og hugmyndaauðgi í vinnubrögðum við framsetningu eigin hugmynda,
- vinna hugmyndavinnu í hóp og sýna þar áræðni og bera virðingu fyrir öðrum,