TOGT1FK05 - Tækni og tól - Fjölmiðlun og kynningarefni
Fjölmiðlun og kynningarefni
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Þrep: 1
Í áfanganum er unnið að fjölmiðlun og vinnslu kynningarefnis í tengslum við menningar-viðburði sem og vinnslu á listrænu efni sem hluta af sviðsmynd. Lögð er áhersla á að efla skilning og grunnþekkingu nemenda á tækjum sem tengjast ljósmyndun og myndbandsgerð. Fjallað er um grunnatriði lýsingar og hljóðvinnslu í tengslum við kynningarefni sem og ýmis sérhæfð forrit sem notuð eru við eftirvinnslu. Nemendur fá þjálfun í meðferð þeirra tækja sem þeir eiga og nota og læra að umgangast þau af þekkingu og virðingu.
Þekkingarviðmið
- Þeim möguleikum sem felast í notkun kvikmynda -og ljósmyndatækni í tengslum við kynningarefni og fjölmiðlun og sem hluta af sviðsmyndum,
- þeim tækjum sem hann á sjálfur og vill nota til að geta skilað af sér vel unnu fjölmiðlaefni í formi myndbanda, ljósmynda eða hljóðs,
- hlutverki lýsingar og hljóðs í vinnslu fjölmiðlunarefnis,
- verkefnastjórnun í tengslum við framleiðslu fjölmiðlaefnis.
Leikniviðmið
- Beita skapandi hugsun við skipulagningu kynningar -og fjölmiðlaefnis,
- taka birtingahæfar ljósmyndir og myndbönd,
- vinna fjölmiðlaefni fyrir ólíka miðla s.s. sjónvarp, útvarp, vef og ýmis smátæki,
- umgangast þau tæki sem hann á og notar með virðingu, viðhalda þeim og vera öðrum fyrirmynd í notkun tækjanna,
- vinna eftirvinnslu í sinni eigin tölvu og á þeim hugbúnaði sem hann sjálfur vill nota,
- vinna á sjálfstæðan og skipulagðan hátt í samstarfi við aðra.
Hæfnisviðmið
- Taka virkan þátt í vinnslu kynningar og fjölmiðlaefnis í tengslum við menningarviðburði,
- koma að vinnslu listrænna myndbanda og annars myndefnis sem hluta af sviðslistaverkum,
- sækja sér frekari þekkingu og reynslu á því sviði sem hugur hans/hennar stendur til innan fjölmiðlunar,
- beita lausnarhugsun í samvinnu við aðra,
- njóta afraksturs vinnu sinnar í formi vel heppnaðs fjölmiðlunarefnis.