DAGL1SU09 - Daglegt líf - Sjálfsstyrking og nærumhverfi okkar
Sjálfsstyrking og nærumhverfi okkar
Einingafjöldi: 9
Þrep: 1
Þrep: 1
Áfanginn er samþættur, með það að markmiði að auka skilning og færni nemenda í félagsmótun, ensku og stærðfræði miðað við þær aðstæður sem myndast geta í daglegu lífi. Stuðst er við sex meginstoðir menntunar eins og þær koma fram í nýrri Aðalnámskrá framhaldsskóla – Læsi í víðum skilningi, menntun til sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og skapandi starf.
Nemendur læra að nýta upplýsingatækni í námi sínu, þjálfast í að vinna með öðrum, þurfa að sýna frumkvæði og læra að bera ábyrgð á eigin námi. Áfanginn byggist að mestu leyti á verkefnavinnu, einstaklings-, para- og hópverkefni, þar sem áhersla er lögð á þjálfun í lestri, beitingu tungumála í ræðu og riti sem og stærðfræði daglegs lífs. Lögð er áhersla á framkomu, tjáningu og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum ásamt leikni í daglegum samskiptum.
Þekkingarviðmið
- íslensku samfélagi og samfélagsgerð
- á helstu hugtökum, viðfangsefnum og orðfæri daglegs lífs
- ólíkum grunngildum og siðferði í samfélaginu
- þeim þáttum sem móta samfélagið, bæði innan lands og utan.
Leikniviðmið
- setja fram á skýran og skapandi hátt efni og upplýsingar.
- notkun internets til upplýsingaleitar, uppbyggilegra samskipta og úrlausna verkefna af ýmsum toga.
- að skoða og meta ólíkt gildismat og viðhorf með tilliti til samhengis orsaka og afleiðinga.
- skipuleggja tíma sinn á raunhæfan hátt, hvort sem er gagnvart skóla, vinnu eða daglegu lífi.
Hæfnisviðmið
- auðga og þroska samskiptahæfni sína, bæði í persónulegum samskiptum og við formlegri aðstæður.
- bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum og geta sett sig í spor annarra.
- taka þátt í lýðræðislegri samræðu og samstarfi.