ATFR1VV06(AV) - Atvinnuþáttaka og þroski
vinnubrögð, vinnustaðanám
Einingafjöldi: 6
Þrep: 1
Forkröfur: ATFR1VK05
Þrep: 1
Forkröfur: ATFR1VK05
Í áfanganum fær nemandinn almenna reynslu á a.m.k. einum vinnustað og tækifæri til að tileinka sér æskileg vinnubrögð og viðhorf til framtíðar. Nemandinn fær kynningu á vinnustaðnum og þeim vinnubrögðum sem ætlast er til að hann tileinki sér. Nemandinn fær leiðsögn frá leiðbeinanda (starfsfóstra) og í kjölfarið er hægt að fela nemandanum ákveðna verkþætti og hægt að ætlast til að hann leysi ákveðin verk úr hendi á eigin ábyrgð.
Þekkingarviðmið
- vinnustaðnum og stjórnendum hans og vita hvert á að leita með álitamál eða til að fá aðstoð og leiðbeiningar
- starfsskyldum sínum s.s. þagnarskyldu, reglum um mætingar, forföll frá vinnu, hlífðar- og öryggisatriði sem vinnan kallar á
- þekkja starfsskyldur svo sem þagnarskyldu, reglur um mætingar, forföll frá vinnu, hlífðar- og öryggisatriði sem vinnan kallar á.
- helstu hugtökum, viðfangsefnum og orðfæri vinnumarkaðarins
- grunngildum og siðferði sem ríkir á vinnumarkaði
Leikniviðmið
- ræða um aðalatriði í starfsemi og fyrirkomulagi vinnustaðarins
- setja fram vinnuskýrslur eða önnur einföld gögn um vinnu sína á hverjum degi
- nota viðurkennd vinnubrögð við ákveðin störf og sinna almennum (einföldum) verkum án stöðugrar leiðsagnar
- taka leiðbeiningum um vinnubrögð og eiga greið samskipti við samstarfsfólk og stjórnendur
- skipuleggja tíma sinn á raunhæfan hátt, hvort sem er gagnvart skóla, vinnu eða daglegu lífi
Hæfnisviðmið
- skilja hlutverk sitt við ákveðin störf og nota orðaforða og hugtök sem starfinu fylgja
- auðga og þroska samskiptahæfni sína, bæði í persónulegum samskiptum og við formlegri aðstæður
- bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum og setja sig í spor annarra
- taka þátt í lýðræðislegri samræðu og samstarfi
- verða betur meðvitaður um sjálfan sig, áhugasvið sitt, styrkleika og veikleika