ENSK3TB05 - Fantasíubókmenntir og Tolkien
Tolkien, bókmenntir, fantasía
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: 10 einingar á 2. þrepi
Þrep: 3
Forkröfur: 10 einingar á 2. þrepi
Áfanginn byggist á umfjöllun um fantasíubókmenntir, þróun þeirra og bakgrunn. Í áfanganum er lögð áhersla á þemavinnu sem tengist bókmenntum og bókmenntasögu.
Unnið er útfrá verkum Tolkien og horft til þeirra verka sem hann byggði sinn sagnaheim á. Helstu einkenni fantasíubókmennta eru kynnt í gegnum skáldverk Tolkien auk þess sem tæpt er á ýmsum tímabilum bókmenntasögunnar eftir því sem þau tengjast viðfangsefni áfangans. Þá er einnig litið til hugmynda um uppbyggingu skáldverka og bókmenntahugtaka þeim tengdum.
Áhersla er lögð á ritun í tengslum við bókmenntaumfjöllun, þar sem nemandinn leitar heimilda sem tengjast ólíkum tímabilum og nýtir í umfjöllun sinni. Einnig er leitast við að nemandinn tjái sig um verkin munnlega og á skapandi máta.
Þekkingarviðmið
- tengslum milli eldri forma bókmennta og nútímabókmennta
- hvernig fanstasíubókmenntir hafa mótast af tíðaranda hverju sinni
- almennum bókmenntahugtökum
- áhrifum Tolkien á bókmenntir og menningarheim samtímans
- áhrifum trúarbragða á bókmenntir
Leikniviðmið
- beita jákvæðri og gagnrýnni hugsun til að geta deilt skoðunum á lesnu efni
- miðla ritun eða öðrum viðfangsefnum sínum á lipurri og hnökralausri ensku
- kafa dýpra ofan í viðkomandi viðfangsefni
- skoða sögulegt, félagslegt, menningarlegt og/eða pólitískt samhengi í texta
- taka þátt í umræðum um bókmenntir/fræðitexta og tjá sig á viðeigandi máta
- lesa sér til gagns rauntexta og krefjandi texta og vinna með þá
Hæfnisviðmið
- gagnrýna og skilgreina bókmenntaverk í rituðu og töluðu máli
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
- geta flutt vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð
- geta dregið eigin ályktanir útfrá bókmenntaverkum
- rökstyðja mál sitt í ræðu og riti
- meta og afla heimilda eftir mismunandi leiðum s.s. af neti, bókasafni og öðrum upplýsingaveitum samkvæmt þeim venjum sem gilda um heimildavinnu