MARG1MV03 - Upplýsingatækni
grafísk uppsetning, myndvinnsla, vektorteikning
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í áfanganum fær nemandinn að kynnast ýmsum hliðum upplýsingatækninnar. Farið verður yfir grunnatriði í tölvumálum og reglur sem gilda í tölvusamskiptum og í umgengni við tölvukerfi skólans. Áhersla er lögð á að nemandinn læri grunnatriði í myndvinnslu, vektorteikningu og grafískri uppsetningu. Auk þess fær hann kynningu á verkfærum sem liggja á vefnum sem notast má við til að búa til kynningar, geyma hugmyndavinnu, búa til einfaldar heimasíður, deila eigin sköpun o.fl.
Þekkingarviðmið
- grunnatriðum myndvinnslu og forritum henni tengdri
- grunnatriðum vektorteikningar og forritum henni tengdri
- grunnatriðum grafískrar uppsetningar og forritum henni tengdri
- hvernig hægt er að nýta ýmis frí kerfi á vefnum í samhengi við nám sitt, sköpun og framsetningu á eigin verkum
- samspili mynda og texta í grafískri vinnu
- hvernig hægt er að nota liti og form á táknrænan hátt
- mismunandi skráarendingum (.svg, .pdf, .jpeg , o.fl.)
Leikniviðmið
- vinna með myndvinnslu-, teikni- og uppsetningarforrit
- vinna með fjölbreytt aðföng
- miðla eigin hugmyndum og sköpun á skipulagðan hátt
Hæfnisviðmið
- meta hvernig best sé að vista gögn með viðeigandi skráarendingu og geyma rafrænt
- meta hvort myndefni sé vinnanlegt
- vinna sjálfstætt með möguleika myndvinnsluforrita, vektorteikningar og grafískar uppsetningar
- rökstyðja val á verkfærum og verkferlum í myndvinnslu, vektorteikningu og grafískri uppsetningu