HÖTE2ET10 - Litun og þrykk
Garn- og efnislitun, möppugerð, prufuvinna, tauþrykk
Einingafjöldi: 10
Þrep: 2
Forkröfur: HÖTE2HU05
Þrep: 2
Forkröfur: HÖTE2HU05
Farið er í meðhöndlun og blöndun lita fyrir mismunandi vefjarefni og garn. Nemandinn lærir aðferðir við blöndun og notkun lita og hjálparefna sem notuð eru við að mála og þrykkja lit á efni. Einnig lærir nemandinn að tileinka sér þær með tilraunum og prufuvinnu. Lögð er áhersla á fagleg, frumleg og sjálfstæð vinnubrögð. Nemandinn skilar góðri hugmynda- og prufu-
möppu með greinagóðum og upplýsandi texta ásamt dagbók/greinargerð yfir vinnu sína í áfanganum. Hann vinnur síðan efni/lokaverkefni þar sem hann sýnir fram á notkun þess í tengslum við aðra áfanga.
Þekkingarviðmið
- mismunandi þrykk og litunaraðferðum
- mismunandi hjálparefnum fyrir litun og þrykk
- mismunandi tækjum og tólum sem tilheyra litun og þrykki
- fagtungumáli og þeim hugtökum sem notuð eru
- þeim mun sem er á tengdu og ótengdu símunstri og hvernig þau eru sett upp fyrir þrykk
Leikniviðmið
- nota forrit/tölvutækni til að teikna og vinna munstur fyrir þrykk
- vinna hugmynd að útfærslu á hönnun á efni í tengslum við hráefni og aðferð
- vinna með form, liti og áferðir
- þrykkja og lita mismunandi efni
- velja aðferð og liti sem henta hverju sinni út frá tegund efna
- þrykkja tengd og/eða ótengd símunstur
Hæfnisviðmið
- öðlast verkkunnáttu til að leysa af hendi mismunandi aðferðir í litun og tauþrykki
- öðlast sjálfstraust til að útfæra og túlka hugmyndir og verkefni undir leiðsögn kennara
- miðla með myndrænni framsetningu eigin hugmyndum ásamt möppu með prufum af lituðum og þrykktum efnum
- gera sér grein fyrir styrk sínum og nýta sér hann í verkefnavali, undir leiðsögn kennara