HÖTE2TT03 - Tískuteikning
hugmynda- og skissuvinna, tískuteikning
Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: MYNL2MA05, HÖTE2HU05
Þrep: 2
Forkröfur: MYNL2MA05, HÖTE2HU05
Í áfanganum lærir nemandinn undirstöðuatriðin í tískuteikningu. Lögð er áhersla á æfingar fyrir hlutföll, jafnvægi, hreyfingu og stöðu líkamans. Helstu teikniáhöld, litir og pappír er notað og litasamsetningar rannsakaðar. Unnið er með skyggingu og áferðarteikningu í fatnaði svo nemendur geti skapað dýpt í teikningar sínar. Einnig eru könnuð mismunandi og fjölbreytt stílbrigði við frágang teikninga, auk þess verða flatar vinnuteikningar líka kynntar til sögunnar. Hugmynda- og skissuvinna er unnin á fjölbreyttan hátt þar sem listrænn þáttur tískuteikningar er skoðaður og nemandinn hvattur til að gera tilraunir og þróa sig í átt að persónulegri túlkun og stíliseringu á teikningum sínum. Farið í frágang og uppsetningu verkefna í ferilmöppu til kynningar í lok áfangans.
Þekkingarviðmið
- notkun teikniáhalda á fjölbreyttan hátt og mismunandi eiginleikum lita og pappírs
- hlutföllum, hreyfingu og stöðu tískugínanna
- mismunandi áferð og efniseiginleikum textíls í teikningu
- aðferðum til að ná fram áferð og skyggingu
- munstri og munsturgerð
- flötum vinnuteikningum
- skissuvinnu sem hluta af hugmyndavinnu
- íslenskum og erlendum tískuteiknurum og hönnuðum
- mikilvægi stöðugrar æfingar til að ná framförum í teikningu
- mikilvægi á framsetningu og uppsetningu ferilmöppu
Leikniviðmið
- nota ýmis teikniáhöld, liti og pappír á fjölbreyttan hátt
- teikna tískugínur á fjölbreyttan og óhefðbundinn hátt
- beita aðferðum til að ná fram skyggingu, áferð og efniseiginleikum
- teikna flatar vinnuteikningar
- vinna hugmyndavinnu og skissur út frá þema
- útbúa hugmynda- eða þemaspjöld
- kynna verk sín fyrir öðrum
- skoða og kynna sér verk eftir íslenska og erlenda hönnuði og tískuteiknara
Hæfnisviðmið
- geta teiknað fjölbreyttar tískuteikningar
- nýta sér mismunandi aðferðir til að þróa með sér persónulegan stíl
- setja hugmyndir sínar og teikningar upp á fjölbreyttan og skapandi hátt
- vinna með hugmyndir, þema og skissur í tískuhönnun
- setja fram hugmyndir og hönnun til kynningar
- setja fram hugmyndir og ganga frá verkefnum í ferilmöppu