BÓKF2FV05 - Framhaldsáfangi í bókfærslu
fyrningar, skuldaviðurkenningar, vöruinnflutningur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: BÓKF1DH05
Þrep: 2
Forkröfur: BÓKF1DH05
Farið er yfir bókun á helstu reikningum fyrirtækja t.d. notkun fyrningareikninga við afskriftir eigna, bókun verðbréfa, hlutabréfa, skuldabréfa og annarra skuldaviðurkenninga og notkun affallareiknings. Fjallað er um helstu atriði launabókhalds. Einnig er farið yfir bókanir sem varða innflutning; tollafgreiðslu, greiðslu virðisaukaskatts í tolli, kostnað og fyrirkomulag við geymslu á vörum í tollvörugeymslu. Uppgjörsfærslum er haldið áfram, bæði í gegnum aðalbók og reikningsjöfnuð. Farið er yfir bókanir í sambandi við stofnun og slit fyrirtækja, breytingar á réttarformi, samruna og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Mikil áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð nemanda og góðan frágang. Nemandinn fær frekari æfingu í notkun töflureiknis við færslu bókhaldsins.
Þekkingarviðmið
- færslum varðandi innflutning á vörum
- helstu innflutningsskjölum
- tollafgreiðslu og greiðslu virðisaukaskatts í tolli
- gengisbreytingum og kostnaði
- fyrirkomulagi við geymslu á vörum í töllvörugeymslu
- fyrningum
- launabókhaldi þ.m.t. staðgreiðslu skatta, framlagi í lífeyrissjóð og tryggingagjaldi
- verðbótum, vöxtum og afborgunum af verðtryggðum skuldabréfum, arðgreiðslum o.fl.
Leikniviðmið
- reikna og bóka verðbætur, vexti og afborganir af verðtryggðum skuldabréfum
- bóka færslur sem tengdar eru hlutabréfaeign s.s. arð, gengisbreytingar, jöfnunarhlutabréf o.s.frv.
- reikna út og gera upp virðisaukaskatt
- færa launabókhald og standa skil á staðgreiðslu skatta, framlagi í lífeyrissjóð og tryggingagjaldi
- færa færslur sem varða stofnun og slit fyrirtækja
- bóka færslur sem varða breytingar á réttarformi fyrirtækja, samruna og fjárhagslegri endurskipulagningu þeirra
- nota töflureikni við útreikninga og færslu bókhalds
Hæfnisviðmið
- færa bókhald fyrir lítið fyrirtæki
- nýta sér upplýsinga um verðbætur, gengi, staðgreiðslu og skyld hugtök