EFNA3OH05 - Ólífræn efnafræði
efnajafnvægi, hvarfhraði, orka, oxun, sýrur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Hafa lokið a.m.k. 5 einingum í stærðfræði á 2. þrepi og EFNA2ME05 eða sambærilegum áfanga
Þrep: 3
Forkröfur: Hafa lokið a.m.k. 5 einingum í stærðfræði á 2. þrepi og EFNA2ME05 eða sambærilegum áfanga
Ólífræn efnafræði með áherslu á magnbundna reikninga og orkubreytingar í efnahvörfum. Hugtökin fríorkubreyting, óreiða og sjálfgengi skoðuð. Hvarfhraði efnahvarfa og áhrifaþættir hvarfhraða skoðaðir. Hraðajafnan notuð til útreikninga á hraðfasta, einnig er árekstrarkenningin og jafna Arrheniusar notuð til að reikna virkjunarorku. Farið í efnajafnvægi, jafnvægisefnahvörf, jafnvægisfasta og jafnvægislíkinguna. Sýrur og basar, bæði rammar og daufar sem og útreikningar á pH með hjálp klofningsfasta framkvæmdir. Oxunar- og afoxunarhvörf, spennuröð og oxunartölur notaðar til að ákvarða oxara og afoxara í efnahvörfum. Talsverð áhersla á útreikninga, gagnrýna hugsun og sjálfstæð vinnubrögð.
Þekkingarviðmið
- orku í efnahvörfum, sjálfgengni og fríorkubreytingu
- hraðafræði efnahvarfa og hvarfhraða.
- jafnvægi í efnahvörfum
- efnafræði sýra og basa og jafnvægi hjá daufum sýrum og bösum
- oxun og afoxun, oxunartölum og spennuröð málma.
Leikniviðmið
- beita orkuhugtökum og reikna út orkubreytingar í tengslum við efnahvörf
- reikna meðalhraða og upphafshraða efnahvarfa
- nota jöfnu Arrheniusar til að bera saman hraða efnahvarfa við mismunandi hitastig
- nota jöfnu Arrheniusar til að reikna virkjunarorku (Ea)
- nota jafnvægisfasta og styrk efna til að reikna stöðu jafnvægis
- beita útreikningum er tengjast sýrum og bösum til að finna styrk, jafnvægispunkt og pH
- nota reglur um oxunartölur til að finna oxara og afoxara
- nota afoxunarspennutöflur til að finna út hvort líklegt sé að efnahvarf verði
Hæfnisviðmið
- tengja saman efnafræði og aðrar náttúrufræðigreinar
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
- leggja rökstutt mat á áreiðanleika niðurstaðna
- taka þátt í rökræðum er lúta að málefnum sem tengjast efnafræði
- tengja efnafræði við daglegt líf og umhverfi
- útskýra útreikninga og leysa flóknari verkefni