SAGA2NM05 - Mannkynssaga til 1800
fundur Íslands, hrun Rómaveldis, menning fornaldar, nýöld
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: engar
Þrep: 2
Forkröfur: engar
Í þessum byrjunaráfanga er sögunni fylgt í tímaröð frá fornöld fram til um 1800. Ýmis efni úr sögu Evrópu og Íslands valin, t.d. menningarheimur miðalda, víkingaöld og landnám Íslands, ný heimsmynd á tímum endurreisnar, vísindabyltingar, landafunda og siðaskipta um 1500. Lögð er áhersla á að nemandinn geti staðsett sig í samhengi sögunnar, sett sig í spor fólks frá ýmsum tímum og sjái tengsl við umhverfi sitt og samhengi á milli tímabila.
Þekkingarviðmið
- helstu tímaskeiðum mannkynssögunnar, hvað markar upphaf þeirra og endi og hvað einkennir þau
- helstu hugtökum og atburðum tímabilsins með sérstakri áherslu á Íslandssögu
- mismunandi menningarheimum
- undirstöðuatriðum sagnfræði sem fræðigreinar og mismunandi tegundum heimilda
Leikniviðmið
- greina meginþætti og álitamál í sögulegri framvindu
- leita eftir mismunandi sjónarhornum og mynda sér skoðun á sögulegum málefnum
- leita samhengis og tengsla milli tímabila
- meta orsakir og afleiðingar í sögunni
- tengja samtímaatburði við liðna tíma
Hæfnisviðmið
- sjá sögu Íslands í samhengi við sögu Norðurlanda, Evrópu og heimsins
- setja sjálfan sig í samhengi sögunnar og í spor fólks á ýmsum tímum
- taka þátt í skoðanaskiptum og rökræðum með jafningjum um söguleg efni sem tekin eru fyrir í áfanganum
- skilja gildi og afstæði sögulegrar frásagnar og skýringa