SAGA2MT05 - Mannkynssaga frá 1900 til okkar daga
heimurinn á 21. öld, kalda stríðið, millistríðsárin, nýlendustefnan
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: SAGA2SÍ05 eða sambærilegur áfangi
Þrep: 2
Forkröfur: SAGA2SÍ05 eða sambærilegur áfangi
Valdir þættir úr sögu 20. aldar verða teknir til íhugunar og gagnrýninnar skoðunar. Fjallað verður um Ísland og aðstæður hér og hvernig atburðir í öðrum löndum höfðu áhrif á íslenskt samfélag. Leitast verður við að kafa dýpra í valið efni og það skoðað og rannsakað með margvíslegu móti. Áhersla á að tengja námsefnið reynsluheimi nemanda, auka víðsýni hans og rökhugsun. Nemandinn kynnist heimildarýni af ýmsu tagi og sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum.
Þekkingarviðmið
- völdum þáttum úr sögu 20. til 21. aldar
- mismunandi tegundum heimilda og grunnþekkingu í heimildarýni
- sögulegu samhengi mikilvægra málefna sem eru umtöluð á líðandi stund
- helstu hugtökum sem höfð eru um söguleg fyrirbæri þessa tímabils
Leikniviðmið
- helstu hugtökum sem höfð eru um söguleg fyrirbæri þessa tímabils
- meta gildi áreiðanlegra heimilda og nota fjölbreyttar tegundir þeirra
- sjá tengsl fortíðar og nútíðar og samhengið á milli hinna ýmsu tímabila og einstakra þátta sögunnar
Hæfnisviðmið
- afla upplýsinga í heimildum og draga ályktanir af þeim
- greina sögulegan uppruna samtímafyrirbæra
- beita gagnrýninni hugsun í þekkingaröflun og leggja sjálfstætt mat á söguleg álitamál
- taka þátt í skoðanaskiptum og rökræðum með jafningjum um sagnfræðileg efni
- sýna umburðarlyndi og víðsýni gagnvart sögulegum viðfangsefnum
- skilja takmarkanir helstu hugtaka sem höfð eru um söguleg fyrirbæri þessa tímabils