SIÐF1SÁ05 - Siðfræði heilbrigðisstétta
heilbrigðisþjónusta, samskipti, álitamál
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í þessum áfanga er lögð áhersla á hugmyndafræði og gildi sem liggja samskiptum fagfólks til grundvallar. Fjallað verður lítillega um helstu kenningar í sögu siðfræðinnar og farið verður í ákveðin grunnhugtök úr siðfræði heilbrigðisþjónustunnar t.d. sjálfræði, velferð, faglegt forræði, skyldur fagfólks og réttindi skjólstæðinga. Áhersla er lögð á siðfræði heilbrigðisþjónustu og samskipti skjólstæðinga og heilbrigðisstétta. Siðareglur þessara fagstétta skoðaðar sem og álitamál siðfræðinnar. Áhersla á að tengja námsefnið reynsluheimi nemanda og auka víðsýni hans og rökhugsun.
Þekkingarviðmið
- þeim gildum sem liggja mannlegri breytni til grundvallar
- helstu hugtökum, markmiðum og aðferðum siðfræðinnar
- helstu skyldum fagfólks og réttindum skjólstæðinga
- skilyrðum siðferðislegs sjálfræðis og réttmæti faglegs forræðis
- forsendum réttlátrar heilbrigðisþjónustu
Leikniviðmið
- beita siðferðilegum hugtökum á markvissan hátt í ræðu og riti
- skoða siðferðileg álitamál út frá fleiri en einu sjónarhorni bæði í ræðu og riti
- greina og leysa úr siðferðisvanda
- greina frá helstu fræðihugmyndum í heilbrigðisþjónustu
Hæfnisviðmið
- heimfæra þær fræðihugmyndir og hugtök sem fjallað var um í áfanganum yfir á einstök dæmi úr raunveruleikanum
- rökstyðja hin ýmsu sjónarmið á siðferðilegum álitamálum
- tengja fræðihugmyndir sem fjallað er um í áfanganum við daglegt líf