SPÆN1HT05(AV) - Framhaldsáfangi í spænsku
hlustun, lestur, ritun (A1), tal
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: SPÆN1RL05 eða sambærilegur áfangi
Þrep: 1
Forkröfur: SPÆN1RL05 eða sambærilegur áfangi
Framhaldsáfangi þar sem áframhaldandi áhersla er lögð á að nemandinn bæti við undirstöðuatriði tungumálsins. Þjálfun í lesskilningi aukin ásamt dýpkun á samskiptaþáttunum tali, hlustun og ritun. Markvisst er bætt við orðaforða, þar sem áhersla er lögð á réttan framburð og skilning, þannig að nemandi geti m.a. lesið og skilið stutta texta, tjáð sig skriflega og munnlega um efni sem tengjast athöfnum daglegs lífs. Hluti námsins er kynning á siðvenjum spænskumælandi landa með sérstöku tilliti til jafnréttis og sköpunar. Áhersla er lögð á frumkvæði nemandans og að
Þekkingarviðmið
- viðeigandi orðaforða
- grundvallarþáttum spænska málkerfisins
- framburði
- samskiptavenjum, menningu og siðvenjum spænskumælandi þjóða
Leikniviðmið
- skilja fyrirmæli og setningar sem tengjast daglegum athöfnum
- skilja leiðbeiningar og fyrirmæli
- skilja þegar fjallað er um atburði daglegs lífs
- skrifa stutta texta í nútíð, framtíð og liðinni tíð
- óska eftir og veita upplýsingar
- greina lykilatriði í texta
- tjá sig skriflega og munnlega um kunnugleg efni
Hæfnisviðmið
- nýta viðeigandi mál- og samskiptavenjur við mismunandi aðstæður
- útskýra siðvenjur spænskumælandi landa
- koma á framfæri eigin skoðun, þekkingu og tilfinningum
- velja námsaðferðir við hæfi
- meta eigið vinnuframlag og framfarir í málinu
- sýna aga, metnað, sjálfstæð vinnubrögð og jákvæðni