ÞÝSK1HT05 - Framhaldsáfangi í þýsku
Hlustun, lestur, ritun, tal (A1)
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: ÞÝSK1RL05 eða sambærilegur áfangi
Þrep: 1
Forkröfur: ÞÝSK1RL05 eða sambærilegur áfangi
Framhaldsáfangi þar sem áframhaldandi áhersla er lögð á að nemandinn bæti við undirstöðuatriði tungumálsins. Þjálfun í lesskilningi aukin ásamt dýpkun á samskiptaþáttunum tali, hlustun og ritun. Markvisst er bætt við orðaforða og málnotkun aukin, þar sem áhersla er lögð á réttan framburð og skilning þannig að nemandi m.a. lesið og skilið stutta texta, tjáð sig skriflega og munnlega um efni sem tengjast athöfnum daglegs lífs. Hluti námsins er kynning á siðvenjum þýskumælandi landa með sérstöku tilliti til jafnréttis og sköpunar. Áhersla er lögð á frumkvæði nemandans og að hann beri ábyrgð á eigin námi.
Þekkingarviðmið
- viðeigandi orðaforða áfangans
- grundvallarþáttum þýska málkerfisins
- framburði
- samskiptavenjum, menningu og siðvenjum þýskumælandi þjóða
Leikniviðmið
- skilja fyrirmæli og setningar sem tengjast daglegum athöfnum
- skilja leiðbeiningar og fyrirmæli
- skilja þegar fjallað er um atburði daglegs lífs
- skrifa stutta texta í nútíð, framtíð og liðinni tíð
- óska eftir og geta veita upplýsingar
- greina lykilatriði í texta
- tjá sig skriflega og munnlega um kunnugleg efni
Hæfnisviðmið
- nýta viðeigandi mál- og samskiptavenjur við mismunandi aðstæður
- útskýra siðvenjur þýskumælandi landa
- koma á framfæri eigin skoðun, þekkingu og tilfinningum
- velja námsaðferðir við hæfi
- meta eigið vinnuframlag og framfarir í málinu
- sýna aga, metnað, sjálfstæð vinnubrögð og jákvæðni