ÞÝSK1RS05 - Lokaáfangi í þýsku
hlustun, lestur, ritun, tal(A1)
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: ÞÝSK1HT05 eða sambærilegur áfangi
Þrep: 1
Forkröfur: ÞÝSK1HT05 eða sambærilegur áfangi
Lokaáfangi þar sem virki orðaforðinn er notaður markvisst í tjáningu og aukið við hann.Viðfangsefnin tal, hlustun og ritun verða umfangsmeiri og flóknari, þar sem meiri áhersla verður lögð á að tjá sig skriflega og munnlega um ýmis efni með hagnýtum orðaforða. Nemandinn öðlast dýpri þekkingu á tungumálinu og ýmsum afbrigðum þess. Nemandanum er gert að tileinka sér nýjan orðaforða sem nýtist í að tjá sig, eiga samtöl og vera sjálfbjarga við sérstakar aðstæður. Haldið er áfram að vinna með framburð og skilning. Nemandinn öðlast dýpri þekkingu á tungumálinu og afbrigðum þess. Saga þýskumælandi landa skoðuð með sérstöku tilliti til lýðræðis og mannréttinda. Auknar kröfur um eigin ábyrgð á náminu og sjálfstæð vinnubrögð eru meðal lykilþátta áfangans. Nemandinn er hvattur til að nýta sér upplýsingatækni og önnur hjálpargögn í náminu.
Þekkingarviðmið
- málkerfinu og réttri notkun þess
- orðaforða sem hæfir hæfniviðmiðum áfangans
- tungumálinu og ýmsum afbrigðum þess, t.d. daglegu máli og mállýskum.
- sögu og venjum í þeim löndum þar sem tungumálið er talað
Leikniviðmið
- tjá sig skriflega og munnlega um ýmis efni t.d. úr fjölmiðlum
- lesa texta um efni sem hann þekkir og tileinka sér ný orð í textanum
- segja einfalda sögu og lýsa liðnum atburðum og reynslu í stuttu máli
- skilja fyrirmæli, kveðjur og kurteisisávörp
- skrifa stutta texta í nútíð, framtíð og liðinni tíð
- skilja tölur og tímasetningar
- beita tungumálinu í ræðu og riti
- nota ýmiss hjálpargögn þegar unnið er með tungumálið
Hæfnisviðmið
- skilja talað mál um kunnugleg og ný efni
- skilja meginatriði texta
- nýta viðeigandi mál- og samskiptavenjur við mismunandi aðstæður
- vera sjálfbjarga við sérstakar aðstæður
- miðla eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
- spyrja og svara einföldum spurningum
- segja frá daglegum athöfnum
- velja námsaðferðir við hæfi