MELÆ1ML05 - Menning og nærsamfélag
jafnrétti, lýðræði, menning, sjálfbærni
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í áfanganum er nemandinn þjálfaður í læsi í víðum skilningi og gagnrýninni hugsun. Áhersla er á að nemandinn öðlist skilning á menningarsamfélagi nútímans, beri saman við mismunandi menningarsamfélög og átti sig á mikilvægi sjálfbærni, jafnréttis og lýðræðis. Að auki verður nemandinn meðvitaðri um tengsl einstaklings og samfélags, eigin ábyrgð, þátttöku og mögulegum áhrifum. Nemandinn kynnir sér það sem er að gerast í menningarlífinu, metur það og skoðar með aðstoð samnemenda og kennara. Um er að ræða verkefnabundið nám og nemandinn rannsakar viðfangsefni áfangans hverju sinni á gagnrýninn og skapandi hátt.
Þekkingarviðmið
- sjálfbærni í sínu umhverfi
- eigin ábyrgð í samfélagi manna
- mismunandi stöðu kynjanna í eigin samfélagi
- mikilvægi fjölmenningar í samfélaginu
- eigin menningarsamfélagi í samanburði við önnur
- mikilvægi lýðræðis í eigin samfélagi
Leikniviðmið
- leita að og skoða upplýsingar um umhverfi sitt og samfélag
- skoða jafnrétti út frá menningarlegum gildum samfélagsins
- tengja menningu samfélagsins, gildi og verðmæti við eigið samfélag
- skoða eigin sjálfsmynd, tjá tilfinningar sínar og eigin skoðanir
Hæfnisviðmið
- útskýra stöðu sína í samfélaginu með það að markmiði að vera virkur þjóðfélagsþegn
- ígrunda viðhorf sín
- beita rökhugsun til þess að draga ályktanir og gagnrýna samfélag sitt
- útskýra sjónarmið og skoðanir sínar á skapandi hátt
- meta gildi upplýsinga og draga ályktanir
- skrá úrlausnir sínar skipulega og skiptast á skoðunum við aðra
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau