HREY1JÓ01 - Jóga
jóga, liðleiki, slökun, öndun
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í áfanganum er megináhersla lögð á að nemendur fái tilfinningu fyrir áhrifum hreyfingar á líðan sína, andlega og líkamlega. Farið er í gegnum æfingar sem þjálfa upp styrk, jafnvægi, stöðugleika og liðleika. Í jóga eru hreyfingar gerðar í takt við eigin öndunarflæði. Áhersla er lögð á að hver og einn geti tekið þátt í æfingunum á sínum forsendum. Í lok hvers tíma er farið í gegnum æfingar sem róa hugann og endað í slökun. Mikið er lagt upp úr líkamsvitund, einbeitingu og slökun hugans.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi flæðis öndunar í hreyfingum og stöðum
- hvaða álagsstig hentar best til bætingar á líkamsástandi
- æskilegum aðferðum til þjálfunar líkamans
- mikilvægi slökunar
Leikniviðmið
- einbeita sér að æfingum tímans og útiloka önnur verkefni sem bíða dagsins
- fylgja eftir einföldum jógaæfingum í tíma út frá eigin getu
- tengja saman öndun og hreyfingu í eðlilegt flæði
- stunda líkams- og heilsurækt
- stuðla að bættri líkamsbeitingu
Hæfnisviðmið
- draga úr streitu við krefjandi aðstæður með öndunartækni
- tileinka sér rétta æfingatækni og líkamsbeitingu við jógaþjálfun
- stunda reglulega, fjölbreytta hreyfingu eftir áhuga
- stunda líkamsrækt í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni