HREY1BO01 - Boltaleikir í sal
bolti, hreyfing
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í þessum áfanga er farið í boltaíþróttir. Farið er yfir grunnatriði helstu boltaíþrótta og hvernig hægt er að nýta sér boltaíþróttir sem líkamsþjálfun. Einnig er farið í hvernig boltaleikir geta styrkt einstaklinginn sem félagsveru og hvernig styrkleikar hvers og eins nýtast til að búa til góða liðsheild. Í áfanganum er megináhersla lögð á að nemendur fái tilfinningu fyrir áhrifum hreyfingar á líðan sína, andlega og líkamlega. Farið er í gegnum æfingar sem þjálfa upp styrk og þol.
Þekkingarviðmið
- reglum boltaíþrótta
- hvernig boltaíþróttir geta nýst einstaklingum sem líkamsþjálfun
- æskilegum aðferðum til þjálfunar líkamans
Leikniviðmið
- stunda fjölbreyttar boltaíþróttir
- einbeita sér að æfingum tímans
- stunda líkams- og heilsurækt
Hæfnisviðmið
- stunda boltaíþróttir sér til heilsubótar
- taka þátt í boltaíþróttum með leikfræði og reglur að leiðarljósi
- tileinka sér þætti boltaíþrótta sem snúa að hópsamvinnu og nýta þá í leik og starfi
- stunda reglulega, fjölbreytta hreyfingu eftir áhuga
- stunda líkamsrækt í nánasta umhverfi