HREY1ÚT01 - Útivist
hreyfing, útivist
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í áfanganum er verið að kynna útivist og hvernig hún nýtist við líkamsþjálfun. Kynnt verða fjölbreytt form útivistar eins og göngu- og hjólaferðir, skíði og fleira. Farið yfir leiðir, eðli hreyfingar og útbúnað sem er mikilvægur fyrir útivist.
Í áfanganum er megináhersla lögð á að nemendur fái tilfinningu fyrir áhrifum hreyfingar á líðan sína, andlega og líkamlega. Farið er í gegnum æfingar sem þjálfa upp styrk og þol.
Þekkingarviðmið
- hversu mikilvæg góð heilsa er fyrir framtíðina
- hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
- mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar
- æskilegum aðferðum til þjálfunar líkamans
Leikniviðmið
- auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta
- stunda fjölbreytta útivist og hreyfingu
Hæfnisviðmið
- viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu