MYNL2HU05 - Hugmyndavinna
hugmyndavinna, skapandi hugsun, sköpunarferli, þróun hugmynda
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: SJÓN1TF05, SJÓN1LF05
Þrep: 2
Forkröfur: SJÓN1TF05, SJÓN1LF05
Í áfanganum er fjallað um aðferðir til að efla skapandi hugsun, leikni í þróun hugmynda og hæfni til að koma þeim á framfæri. Notaðar eru ýmsar aðferðir við að skrásetja hugmyndir og þróa þær í gegnum leik og tilraunir. Lögð er áhersla á að skoða margvíslegar útfærsluleiðir, þar sem nemendur vinna bæði sjálfstætt og í samvinnu við aðra. Rík áhersla er lögð á mikilvægi ímyndunaraflsins í sköpunarferlinu og unnið með ólíkar aðferðir til að virkja það.
Þekkingarviðmið
- hugkortum, hugstormun, spuna, þemavinnu og synektískri aðferðafræði
- markvissum leiðum til að halda utan um hugmyndir sínar og úrvinnslu þeirra
- þýðingu fjölbreyttrar gagnasöfnunar við þróun hugmynda
- hugsunarferlinu frá hugmynd til listrænnar sköpunar
- eigin persónulegu leiðum við hugmyndavinnu
- samhenginu á milli hugmyndar, efnis, rýmis, tækni, aðferða og niðurstöðu
- möguleikum rýmis, lita, ljóss, hljóðs, tækja og tóla við úrvinnslu og framkvæmd hugmynda
Leikniviðmið
- vinna ferlið frá hugmynd til afurðar
- beita opinni og leitandi hugsun við þróun hugmynda
- sjá skapandi möguleika í mistökum sem hann gerir
- skýra hugmyndir sínar á munnlegan, skriflegan og myndrænan hátt
- beita margvíslegum aðferðum til að virkja ímyndunaraflið
- koma auga á óvænt samhengi og gera það sýnilegt
- beita sjálfstæði, frumkvæði og hugmyndaauðgi í vinnubrögðum við framsetningu eigin hugmynda
Hæfnisviðmið
- þróa hugmyndir sínar á opinn og skapandi hátt í gegnum tilraunir og fræðilegar aðferðir
- kynna hugmyndir sínar á fjölbreyttan hátt
- nýta margvíslega möguleika við úrvinnslu og framkvæmd hugmynda
- vinna hugmyndavinnu í hóp og bera virðingu fyrir öðrum og skoðunum annarra