MYNL2GR04 - Listgrafík
djúpþrykk, einþrykk, grafík, hæðarþrykk
Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Forkröfur: MYNL2MA05, MYNL2HU05
Þrep: 2
Forkröfur: MYNL2MA05, MYNL2HU05
Í áfanganum er fjallað um listgrafík. Hvað er grafík og hver er sérstaða hennar innan myndlistar. Nemendur vinna teikningu fyrir grafík, læra að flytja teikningu yfir á þrykkplötu og skoða hvernig mismunandi þrykk aðferðir kalla á mismunandi vinnubrögð. Grafík sem fræðigrein er kynnt og innsýn gefin í nokkrar grafíkaðferðir s.s. einþrykk, hæðarþrykk og djúpþrykk. Unnin er skissuvinna, þrykkt svo það uppfylli kröfur um að teljast upplag, og kennt hvernig ganga á frá grafíkmyndum og merkja þær. Nemendur fá þjálfun í umgengni við grafíkpressu og einnig í að þrykkja án grafíkpressu.
Þekkingarviðmið
- mismunandi grafíkaðferðum og vinnubrögðum tengdum þeim
- muninum á einþrykki, djúpþrykki og hæðarþrykki
- þróun grafískra aðferða og áhrifum þeirra á samtíma miðla s.s. grafíska hönnun og prentun
- völdum grafíklistamönnum
- mismunandi aðferðum við að þrykkja
Leikniviðmið
- vinna skissuvinnu sem hentar hverri grafíkaðferð
- yfirfæra myndir frá skissu yfir á grafíkplötu
- þrykkja upplag samkvæmt stöðluðum viðmiðum
- þrykkja myndir í grafíkpressu og með handþrykki
- ganga frá grafíkmyndum og merkja þær
Hæfnisviðmið
- vinna myndir með grafískum aðferðum
- vinna með efni og áhöld sem henta hverri þrykkaðferð
- fjalla um grafíklist af þekkingu og skilningi
- taka virkan þátt í umræðu um grafíklist
- ígrunda verk sín og vinnuferli og ræða við aðra
- þekkja þau áhrif sem listgrafík hefur haft á seinni tíma miðla