Fara í efni

MYNL3LV05 - Lokaverkefni

lokaverkefni myndlistarkjörsviðs, sköpunarferli, sýning

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Nemandinn þarf að hafa lokið öllum myndlistaráföngum á sínu kjörsviði.
Nemandinn vinnur lokaverkefni eftir eigin áhugasviði allt frá grunnhugmynd að lokaútfærslu. Hann getur dýpkað skilning sinn á miðlum sem hann hefur áður kynnst eða kynnt sér nýja. Nemandinn gerir verkáætlun sem hann fylgir eftir. Hann leitar víða gagna bæði hvað varðar hugmyndir og tækni. Hann ígrundar vinnu sína jafnt og þétt í samvinnu við kennara og nemendahóp. Verk hans skal uppfylla kröfur um hugmyndaauðgi, listræna framsetningu og góðan frágang. Nemandinn gerir grein fyrir forsendum fyrir vali á viðfangsefni, hugmynd að baki, þróunarferli og afstöðu til niðurstöðu. Nemandinn tekur þátt í að undirbúa og setja upp sýningu á verkum hópsins.

Þekkingarviðmið

  • hvernig myndlistarverk er unnið frá grunnhugmynd að lokaútfærslu
  • eigin sköpunarferli og þeim þáttum sem liggja að baki sjálfstæðri og skapandi vinnu
  • öguðum vinnubrögðum við þróun og útfærslu hugmynda
  • mikilvægi ígrundunar í sköpunarferli
  • stöðu eigin verka í myndlistarlegu samhengi
  • hvernig samsýning er sett upp

Leikniviðmið

  • vinna myndlistarverk frá grunnhugmynd að lokaútfærslu
  • vinna með þá miðla sem hann hefur áður kynnst eða takast á við nýja
  • gera verkáætlun og fylgja henni eftir
  • vinna sjálfstætt og sýna aga og áræðni í vinnubrögðum
  • ígrunda á öllum tímum vinnuferlis og vera opinn fyrir breytingum
  • beita viðeigandi aðferðum við útfærslu verka sinna þannig að afrakstur verði í tengslum við ætlan

Hæfnisviðmið

  • setja upp sýningu
  • tjá sig á skýran, ábyrgan, gagnrýninn og skapandi hátt um eigin verk og listræna niðurstöðu
  • stunda nám í myndlist eða myndlistartengdu námi á háskólastigi
  • sýna frumkvæði og hugmyndaauðgi í sköpunarferli
  • færa rök fyrir þeim ákvörðunum sem hann tekur í þróunarferlinu
  • fjalla á upplýstan og greinargóðan hátt um eigin verk og samnemenda þannig að gagnlegar umræður skapist
  • undirbúa og setja upp samsýningu
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?