Fara í efni

SÁLF3GG05(AV) - Afbrigðasálfræði

frávikshegðun, geðheilsa, geðrænar raskanir, sálfræðileg meðferð

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SÁLF2SF05 eða sambærilegur áfangi
Helstu umfjöllunarefni áfangans eru geðheilbrigði, geðrækt og algengustu flokkar geðrænna raskana. Fjallað verður um orsakir þeirra, tíðni, einkenni og meðferðarúrræði. Lögð er áhersla á að nemendur átti sig á samspili líkamlegra og andlegra þátta í tengslum við geðheilbrigði og þróun geðraskana. Nemendur kynnast leiðum til að verjast streitu og taka á afleiðingum hennar. Leitast verður við að draga úr ranghugmyndum og fordómum um fólk með geðraskanir. Áhersla á að auka víðsýni nemanda, rökhugsun, sjálfstæð og öguð vinnubrögð.

Þekkingarviðmið

  • helstu hugtökum og kenningum sálfræði sem tengjast einstaklingsmun og frávikshegðun
  • geðröskunum, orsökum þeirra, einkennum og afleiðingum
  • leiðum til að draga úr kvíða og streitu og til að viðhalda góðri geðheilsu
  • geðheilbrigðiskerfinu
  • aðstæðum fólks með geðraskanir
  • staðalímyndum tengdum geðröskunum og fordómum gagnvart fólki með geðraskanir

Leikniviðmið

  • beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
  • velja milli kenninga og aðferða við lausn verkefna
  • miðla fræðilegu efni skýrt og skilmerkilega í ræðu og riti
  • vinna sjálfstætt og með samnemendum að því að kynna sér, draga saman og kynna fyrir öðrum sálfræðilega umfjöllun um geðraskanir

Hæfnisviðmið

  • afla upplýsinga, greina þær og setja í samhengi
  • nýta fræðilegan texta á íslensku og á erlendu tungumáli
  • leita að upplýsingum, leggja mat á þær og greina mikilvægustu atriði þeirra
  • nálgast verkefni á faglegan og sjálfstæðan hátt
  • móta eigin aðstæður með það að markmiði að stuðla að geðheilbrigði
  • vekja aðra til umhugsunar um aðstæður fólks með geðraskanir og vinna gegn fordómum gagnvart þeim
  • setja fram nákvæmar röksemdir fyrir skoðunum sínum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?