SÁLF3FR05(AV) - Félags- og persónuleikasálfræði
félagssálfræði, persónueinkenni, rannsóknir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SÁLF2SÞ05 eða sambærilegur áfangi
Þrep: 3
Forkröfur: SÁLF2SÞ05 eða sambærilegur áfangi
Fjallað er um félagssálfræði og helstu viðfangsefni hennar, m.a. staðalmyndir, fordóma, viðhorf, aðdráttarafl o.fl.. Jafnframt er fjallað um áhrif félagslegs umhverfis á hegðun, t.d. á hegðun stórra hópa, hjálpsemi og hlýðni við yfirvöld. Auk umfjöllunar um viðfangsefni félagssálfræði er fjallað um persónuleikasálfræði og það sem helst er vitað um einstaklingsmun. Áhersla er lögð á þjálfun vinnubragða hvað varðar sálfræðilegar rannsóknir og að nemendur geti sett niðurstöður rannsókna fram með skipulegum hætti í rannsóknarskýrslu.
Þekkingarviðmið
- helstu hugtökum og kenningum sálfræði sem tengjast einstaklingsmun og persónueinkennum
- mótun og breytingu viðhorfa
- staðalmyndum og fordómum
- áhrifum félagslegra aðstæðna á hegðun, s.s. hjálpsemi og hlýðni
- framkvæmd sálfræðilegra rannsókna og skipulegri framsetningu niðurstaðna
Leikniviðmið
- beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
- vinna úr niðurstöðum sem aflað er með rannsókn
- setja niðurstöður tilrauna og rannsókna fram með skipulegum hætti í skýrslu
Hæfnisviðmið
- afla upplýsinga, leggja mat á þær, greina og setja í samhengi
- nýta fræðilegan texta á íslensku og á erlendu tungumáli
- afla gagna með því að framkvæma rannsókn
- skipuleggja og framkvæma rannsóknir
- setja niðurstöður rannsókna fram með skýrum og skipulegum hætti