HBFR1SS02 - Heilbrigðisfræði með áherslu á sjálfsmynd og samskipti
Sjálfsmynd og samskipti
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Unnið er markvisst að því að nemandinn öðlist leikni við eflingu sjálfsmyndar og sjálfsvitundar. Unnið verður með samskipti, eigin hegðun og framkomu og hversu mikilvægt það er að geta átt ábyrg og farsæl samskipti við aðra.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi réttrar sjálfsmyndar og sjálfsvitundar
- mikilvægi þess að vera sáttur við sjálfan sig
- mismunandi leiðum í samskiptum og samstarfi
- mikilvægi hollra lífshátta og hreyfingar fyrir sjálfsmyndina
Leikniviðmið
- þekkja sjálfan sig
- styrkja sjálfsmynd sína
- eiga góð samskipti við mismunandi einstaklinga í mismunandi aðstæðum
- fara eftir ráðleggingum um holla lífshætti, fæðuval og hreyfingu
Hæfnisviðmið
- þekkja eigin sjálfsmynd og vera sáttur við hana
- þekkja eigin líðan, einkenni vanlíðunar og geta leitað sér hjálpar
- vera umburðarlyndur gagnvart mismunandi einstaklingum
- lifa hollu og heilsusamlegu lífi með tilliti til mataræðis og hreyfingar