LÝÐH1HR02 - Lýðheilsa með áherslu á hreyfingu
hreyfing og lýðheilsa - verklegt
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Áfanginn er verklegur og fer fram í íþróttasal eða utandyra. Áhersla er lögð á grunnþættina þol, styrktaræfingar og liðleika. Fjölbreyttar aðferðir verða notaðar til að auka úthald, s.s útihlaup/ganga, þrektæki, stöðvaþjálfun og leikir. Leitast verður við að æfingar hæfi getu og áhuga hvers og eins. Farið verður í æfingar til að bæta líkamsstyrk, s.s. æfingar með eigin líkamsþyngd. Gerðar verða teygjuæfingar í lok kennslustundar og farið yfir mikilvægi þeirra.
Þekkingarviðmið
- hversu mikilvæg góð heilsa er fyrir framtíðina
- hvað reglubundin hreyfing getur verið góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
- mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar
Leikniviðmið
- auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum
- reikna út æfingarpúls fyrir brennslu- og/eða þolþjálfun
- nota aðferðir til að mæla þol, styrk og liðleika
Hæfnisviðmið
- nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu
- viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu