LÝÐH1ST02 - Lýðheilsa með áherslu á stöðvaþjálfun
Stöðvaþjálfun
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Áfanginn er verklegur og fer fram í íþróttasal eða utandyra. Áhersla er lögð á grunnþættina þol, styrk og liðleika og nemendur gera ýmsar æfingar á stöðvum sem auka þessa þætti. Leitast verður við að æfingar hæfi getu og áhuga hvers og eins. Farið verður í æfingar til að bæta líkamsstyrk, s.s. æfingar með eigin líkamsþyngd.
Þekkingarviðmið
- að fara ekki of geyst af stað
- að ýmsar hættur geta leynst í tækjasal
- að hreyfing er holl og góð fyrir líkamann
Leikniviðmið
- nota fjölbreytt líkamsræktartæki
- gera fjölbreyttar æfingar
Hæfnisviðmið
- nýta sér styrktarþjálfun sem valkost í hreyfingu
- bæta líkamasástand sitt
- sækja tíma í líkamsræktarstöðvum og nýta sér þjónustu þeirra