LÝÐH1ÍÚ02 - Lýðheilsa með áherslu á útivist og göngu
Íþróttir og útivist
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandinn kynnist útvist og möguleikum til gönguferða utandyra. Skipulagðar gönguferðir verða farnar í nær- og fjærumhverfi skólans. Nemandinn fær leiðsögn við að velja sér fatnað og skóbúnað sem hæfir til gönguferða
Þekkingarviðmið
- að hægt er að nota útivist og göngu til að viðhalda eða bæta líkamsástand
- að velja verður viðeigandi fatnað og skóbúnað eftir viðfangsefni hverju sinni
- mikilvægi þess að setja sér markmið
Leikniviðmið
- auka hraða í göngu
- ganga lengri vegalengd
- auka þrek og úthald í göngu
- vara sig á hættum
Hæfnisviðmið
- fara í gönguferðir, lengri eða styttri, einn eða með fjölskyldu og vinum
- fara í skipulagðar gönguferðir með ferðafélagi
- njóta þess að ganga