FÉLA1MS05(AV) - Inngangur að félagsfræði
atvinnulíf, menning, samfélag, stjórnmál
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Fjallað er um sjónarhorn, helstu hugtök og vinnuaðferðir greinarinnar. Skoðuð eru áhrif samfélagsins á aðstæður, hugsun og hegðun einstaklinga og hvernig þeir geta haft áhrif á umhverfi sitt. Fjallað er um þróun mannlegra samfélaga, hnattvæðingu og stöðu Íslands meðal þjóða heims og áhrif iðnvæðingar á íslenskt samfélag. Fjallað er um stjórnskipan íslensks samfélags og áhersla lögð á atvinnulíf og stjórnmál. Lögð er áhersla á að nemandinn verði fær um að taka þátt í samfélagslegum umræðum, lesa fræðilega texta um viðfangsefni áfangans og mynda sér skoðanir á grunni þekkingar og umburðarlyndis gagnvart menningu, trú og skoðunum annarra.
Þekkingarviðmið
- algengustu hugtökum félagsvísinda
- mótunaröflum einstaklinga
- margbreytileika samfélaga og þróunarsögu þeirra
- áhrifum iðnvæðingar á íslenskt samfélag
- skipulagi íslensks samfélags og Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins
- réttindum og skyldum einstaklingsins gagnvart samfélaginu
- hnattvæðingu
- stöðu Íslands meðal þjóða heims
- högum fjölskyldunnar
Leikniviðmið
- lesa félagsfræðilega texta
- nota félagsfræðileg hugtök til að greina og bera saman aðstæður fólks í mismunandi samfélögum og á mismunandi tímum
- íhuga og ræða eigin hugmyndir og fordóma
- fjalla á gagnrýninn hátt um samfélagsleg málefni líðandi stundar í ræðu og riti
Hæfnisviðmið
- meta upplýsingar og móta sér skoðanir á samfélagsmálum á upplýstan, gagnrýninn og umburðarlyndan hátt
- taka þátt í samræðum um samfélagsmál á vitrænan hátt
- ræða um samfélagsmál af þekkingu og víðsýni
- deila þekkingu sinni með öðrum