FÉLA2FA05(AV) - Kenningar og aðferðafræði
aðferðafræði, frumkvöðlar, félagsleg lagskipting, kenningar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FÉLA1MS05 eða sambærilegur áfangi
Þrep: 2
Forkröfur: FÉLA1MS05 eða sambærilegur áfangi
Í áfanganum er fjallað um nokkra helstu frumkvöðla félagsfræðinnar, helstu kenningar í félagsfræði og samfélagið skoðað í ljósi þeirra. Einnig er fjallað um mannleg samskipti, frávik og afbrot, félagslega lagskiptingu, kynhlutverk o.fl. Áhersla er lögð á að nemandinn öðlist dýpri skilning á hugtökum en áður, setji þau í fræðilegt samhengi og tengi við umhverfi og reynsluheim sinn. Nemandinn er þjálfaður í að beita félagsfræðilegu innsæi við túlkun á samfélagslegum málefnum, sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum.
Þekkingarviðmið
- frumkvöðlum félagsfræðinnar og helstu kenningum þeirrra
- rannsóknaraðferðum í félagsfræði
- félagslegri lagskiptingu, frávikum, kynhlutverkum, sjálfsmynd o.fl.
- táknrænum samskiptum
- áhrifum fjölmiðla
Leikniviðmið
- beita félagsfræðikenningum til að skoða samfélagsleg málefni
- beita félagsfræðilegu innsæi
- nota aðferðir félagsfræðinnar
- fjalla um og bera saman kenningar félagsfræðinnar
Hæfnisviðmið
- tjá sig á gagnrýninn hátt um ýmis samfélagsleg málefni
- taka þátt í umræðum og mynda sér skoðanir sem byggja á gagnrýninni hugsun
- afla upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta
- framkvæma einfalda rannsókn og átta sig á helstu niðurstöðum
- taka ábyrgð á námi sínu og vinna í samvinnu við aðra
- hagnýta Netið til að afla sér upplýsinga