HEIF1HN02 - Heilsufræði 1
hreyfing, lýðheilsa, næring
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Áfanginn er bóklegur og fjallar um fræðilega þætti heilsulæsis, líkamsþjálfunar og heilsueflingar. Í áfanganum er farið yfir almenna þjálffræði tengda upphitun, þol-, styrktar-, og liðleikaþjálfun. Fjallað er um mikilvægi næringar, áhrif umhverfis og menningar á heilsu, hreinlæti, kynheilbrigði og fleira sem tengist því að auka heilsulæsi einstaklingsins og ábyrgð hans á eigin heilsu. Auk þess er fjallað um heilsu á víðtækan hátt og forvarnagildi hreyfingar og heilbrigðs lífsstíls.
Þekkingarviðmið
- þeim þáttum sem hafa áhrif á heilsu okkar
- mikilvægi andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar vellíðunar
- hvernig nemandi getur haft áhrif á þá þætti sem stjórna eigin vellíðan
- mikilvægi þess að byggja upp virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum með því að rækta líkama sinn og sál
- áhrifum umhverfis og menningar á hugmyndir fólks um heilsu og heilbrigði
- mikilvægi upphitunar, úthalds- styrktar- og liðleikaþjálfunar
- mikilvægi réttrar líkamsbeitingar
Leikniviðmið
- temja sér hollt og gott mataræði
- nota heilsulæsi til að efla og viðhalda góðri andlegri og líkamlegri heilsu
- skipuleggja eigin þjálfun
Hæfnisviðmið
- styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í almennri heilsurækt, leikjum og útiveru
- skilja gildi samvinnu í leik og keppni
- nýta upplýsingar á netinu er varða heilsusamlegan lífsstíl, jákvæða sjálfsmynd og geðheilbrigði
- sýna öðrum virðingu við leik, nám og störf
- glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt
- tileinka sér hollar og fjölbreyttar fæðuvenjur