ÞJSK1VM02 - Gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar
Vakinn, menning, viðhorf
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: ÞJSK1SÞ02
Þrep: 1
Forkröfur: ÞJSK1SÞ02
Í þessum áfanga er lögð áhersla á þjónustugæði og þjónustusamskipti. Vakinn, gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar, er kynnt. Fjallað er um einkenni ferðaþjónustustarfa og ferðamanninn/gestinn sem viðskiptavin. Einnig er fjallað um samskipti í alþjóðlegu umhverfi þar sem sérstaklega er tekið á ólíkum viðhorfum og mismunandi menningu. Áhersla er lögð á tjáningu ásamt rafrænum samskiptum. Lögð er áhersla á að efla sjálfstæði, sjálfstraust og samskiptahæfni nemanda.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi góðrar þjónustu
- þjónustugæðum og mikilvægi þess að setja sér skýr markmið í þeim efnum
- einkennum ferðaþjónustustarfa
- mikilvægi góðra samskipta í alþjóðlegu umhverfi, s.s. viðhorfi, menningu, fordómum o.fl.
- ólíkum þörfum og væntingum viðskiptavina/ferðamanna/gesta
Leikniviðmið
- skoða einkenni mannlegra samskipta
- hlusta eftir og sinna ólíkum þörfum viðskiptavina/ferðamanna/gesta eftir mismunandi þjóðerni
- vinna að bættri þjónustu og betri samskiptum
Hæfnisviðmið
- eiga samskipti við fólk af ólíku þjóðerni, kyni og aldri byggt á skilningi og virðingu
- tjá sig skýrt og skilmerkilega í rituðu og töluðu máli
- taka ábyrgð á eigin framkomu, afstöðu og sýn á þjónustuhlutverkið
- gera sér grein fyrir sérstöðu ólíkra starfa í ferðaþjónustu