ÖRSK1AÖ01 - Öryggisfræði
aðbúnaður, lög og reglur, réttindi, skyldur
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Áfanginn fjallar um öryggismál og aðbúnað á vinnustöðum, réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Í áfanganum er m.a. farið er yfir skipulag öryggismála og brunavarna, lög og reglur um aðbúnað og hollustuhætti ásamt helstu orsökum vinnuslysa. Farið er yfir meðferð hættulegra efna, viðbrögð við slysum á vinnustað og öryggiskröfum sem gilda um vélar og búnað sem notaður er til rekstrar. Lögð er áhersla á að nemandinn sé virkur þátttakandi í náminu og hafi sjálfstraust til að takast á við fjölbreytt verkefni.
Þekkingarviðmið
- lögum og reglum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum
- skipulagi öryggismála og brunavarna á vinnustöðum
- helstu orsökum vinnuslysa og hvernig þau eru tilkynnt
- meðferð hættulegra efna
- atvinnusjúkdómum og líkamsbeitingu
- mismunandi gerðum slökkvitækja
- öryggiskröfum á vélum og tækjum sem og öðrum búnaði sem notaður er til daglegs rekstrar ásamt eftirlitsskyldu með þeim
- þeim kjarasamningum sem gilda
- réttindum sínum og skyldum varðandi kjaramál
Leikniviðmið
- bregðast við slysum á vinnustað
- umgangast öryggisbúnað og tæki og nota eftir aðstæðum
- umgangast hættuleg efni
- umgangast vélar og tæki af öryggi
- fletta upp í lögum og reglum um öryggi, aðbúnað og hollustuhætti á vinnustað
- lesa kjarasamninga
- kunna á slökkvitæki og beita þeim
Hæfnisviðmið
- bregðast rétt við hverskyns utanaðkomandi hættum
- átta sig á réttindum og skyldum starfsmanna á vinnustöðum
- fyrirbyggja óhöpp og slys á vinnustað