FÖFM1IH04 - Fag- og örverufræði kjöt- og bakaraiðnar
fagleg vinnubrögð, hreinlætisfræði, innra eftirlit
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í áfanganum er fjallað um færniþætti matvælagreina í bóklegri kennslu. Nemandinn kynnist straumum og stefnum í matvælagreinum og vinnsluaðferðum í hverri grein. Hann kynnist siðum og venjum og þeim kröfum sem gerðar eru um rétt vinnubrögð í matvælagreinum. Nemandinn fær kennslu í því að fylgja leiðbeiningum, t.d. uppskriftum o.fl. er tengjast störfum í matvælagreinum, svo og faglegum vinnubrögðum. Fjallað er um innra eftirlit, HACCP og nemandinn upplýstur um mikilvægi hreinlætis á vinnusvæði og búnaði m.a. til að koma í veg fyrir matarsjúkdóma. Einnig er farið yfir ábyrgð matvælaframleiðenda í því samhengi. Kynntar eru gildandi öryggisreglur um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum. Nemandinn lærir að gera hreinlætisáætlanir og er þjálfaður í að fylgja þeim eftir, ásamt því að kunna skil á helstu hreinsi- og sótthreinsiefnum. Lögð er áhersla á að glæða áhuga nemanda á náminu, efla sjálfstæði hans og sjálfstraust.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi starfa í matvælagreinum og þýðingu þeirra fyrir samfélagið
- þeim færniþáttum sem viðhafðir eru við mismunandi störf í matvælagreinum
- faglega réttum vinnubrögðum og mikilvægi þeirra við störf í matvælagreinum
- hreinsiáætlunum HACCP
- eiginleikum helstu ræstiefna og notkun þeirra
- mikilvægi hreinlætis og þrifnaðar í matvælaframleiðslu
- ábyrgð starfsfólks í matvæla- og veitingagreinum
Leikniviðmið
- vinna í matvælagreinum eftir fyrirfram ákveðnum verkferlum á faglegan hátt
- vinna eftir uppskrift og fylgja leiðbeiningum
- viðhafa gott persónulegt hreinlæti
- þrífa tæki, áhöld og umhverfi samkvæmt reglum um þrif í matvælafyrirtækjum
- nota algengustu ræsti- og sótthreinsiefni með tilliti til efnafræðilegrar uppbyggingar og umhverfisverndar
- gera hreinlætisáætlanir og vinna samkvæmt þeim
- fylgja fyrirmælum, uppskriftum og fleiri leiðbeiningum á réttan hátt
Hæfnisviðmið
- takast á við mismunandi störf í matvælagreinum og vinna við þau undir handleiðslu iðnmeistara eða tilsjónarmanns
- fylgja viðurkenndum starfsaðferðum sem notaðar eru við störf í matvælagreinum
- vinna skv. uppskriftum og leiðbeiningum frá viðkomandi yfirmanni/starfsmanni hverju sinni
- vinna með hreinlætisáætlanir skv. gæðakerfi HACCP
- ganga af öryggi um vinnusvæði með tilliti til hreinlætiskrafna út frá öryggi viðskiptavinarins
- nýta fyrirbyggjandi aðferðir til að forðast matarsýkingar við störf sín